Í þættinum eru þrír af sex ritstjórum Möndulhalla mættir í viðtal. Það eru Sahara Rós Ívarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og Hólmfríður María Bjarnadóttir. Rebekka Sif mun stjórna umræðum. Einnig má heyra brot úr þremur sögum en þær eru eftir Ólöfu Sverrisdóttur, Örvar Smárason og Rebekku Sif Stefánsdóttur. Möndulhalla má finna í öllum betri bókabúðum og á heimasíðu Unu útgáfuhúss.