Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Morðaforði:How many episodes does Morðaforði have?The podcast currently has 44 episodes available.
January 05, 202241. Bjúgfen og SurvivorÞáttur 41 er mættur eftir langt og gott sumarfrí hjá okkur morðsystrum. Höfum saknað þess svo að hittast, sötra og spjalla um viðbjóð. Við skemmtum okkur allavega konunglega við upptökur á þættinum, vonum að skemmtið ykkur líka. Skál!Þátturinn er í boði Ölverk og við smökkuðum hvorki meira né minna en þrjá ólíka bjóra frá þeim, en það voru Eilífur, Rótandi og Quexcomate. Mælum hiklaust með!Við erum báðar staddar í Bandaríkjunum samt líka Mexikó. Raðmorðinginn Ronald Dominique og Survivor producerinn Bruce Beresford-Redman.facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more1h 14minPlay
June 09, 202139. Bakaraofnar og HákarlarAlltaf er það sama viðbjóðslega gleðin á miðvikudögum, ekki satt?Þessi þáttur er í boði Viking Brugghús og við smökkuðum frá þeim bjórinn Pink (Mango og Cherry White Ale). Hann er alveg einstaklega góður og sumarlegur!Lára tók fyrir mál frá Finnlandi og Stella brá sér til Ástralíu. Bæði málin eiga það sameiginlegt að vera óupplýst svo hvað segiði kæru hlustendur um að leysa þessi mál kannski bara með okkur?Skál fyrir ykkur!facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more36minPlay
June 02, 202138. Tannlæknar og ForsetarÞátturinn í dag er í boði Ölvisholt Brugghúss og veislan heldur bara áfram! En við smökkuðum Hercule Peró (Peru og Engifer Skyrsúr) og Forseta (Session IPA). Mælum hiklaust með því að þið smakkið öll!En Stella tók Indverskt mál og fjallaði um dularfulla morðið á Aarushi Talwar, en það hefur t.d. verið kallað hið indverska Jon Benet Ramsey. Lára braut blað í sögu Morðaforða og tók fyrir fyrsta íslenska málið!Takk fyrir að hlusta, skál í botn og restina í hárið vinir.facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more55minPlay
May 26, 202137. Eltihrellar og LimsugurÞáttur dagsins er í boði Ölvisholt Brugghúss og það var sannkölluð veisla hjá okkur. Við brögðuðum á TVEIMUR eðalbjórum sem heita þeim ljúfu nöfnum Baldur (Munich Helles Lager) og Freyja (Bláberja Witbier).Við mælum hiklaust með því að þið smakkið þessa, Freyjan var sérstaklega skemmtileg!Annars erum við báðar staddar í BNA og herregud hvað það leynist mikill viðbjóður þar alltaf. Lára sagði frá dularfullum dauða Morgan Ingram og Stella frá einstaklega sorglegum dauða Cassie Jo Stoddart.Allt saman svo erfitt en samt eitthvað svo áhugavert.Skál fyrir ykkur!facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more1h 4minPlay
May 19, 202136. Rassaíkveikjur og SystkinaerjurJú komið fagnandi! Hvílík ánægja að miðvikudagurinn komi alltaf aftur. Þáttur dagsins er í boði Ölvisholt Brugghús en við dreyptum á Hoppy Saison bjórnum þeirra sem heitir Hlín. Og það má segja að hann hafi tikkað í öll box! Við mælum með.Annars er Stella með frekar mikið bömmer mál þar sem hún segir frá limsugunni honum Albert Fish frá Bandaríkjunum. Við treystum því á Láru að koma með nokkra brandara og hún sveikst ekki undan því en kom svo með neglu frá Englandi. Það mál er kallað The Twilight Murders.Halelúja!facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more1h 15minPlay
May 12, 202135. Baðferðir og SæringarMorðaforða miðvikudagur enn á ný og í dag brögðum við á dýrindis bjór frá FLAK. Eins og þau segja sjálf frá þá er FLAK listhneigt samkomuhús og sjávarfangssjoppa í gömlu verbúðinni við Patreksfjarðarhöfn. Bjórinn þeirra var einstaklega góður og við mælum hiklaust með því að þið skottist öll á Patró og smakkið amk. einn hélaðann Flak bjór.Annars töluðum við alveg frekar mikið í þessum þætti. Góð prósenta í okkur og sólarstemmser. Stella fjallaði um hvarfið á Bobby Dunbar frá Bandaríkjunum á meðan Lára brá sér til Bretlands og fjallaði um eina lauflétta særingu eða exorcism. Takk fyrir að hlusta kæru vinir og gluðið nú í ykkur svalandi drykk í sólinni með okkur. facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more1h 4minPlay
May 05, 202134. Jónur og HorgöndlarMiðvikudagur enn á ný og við Morðsysturnar skálum fyrir því með einni hélaðri Systir frá Viking.Hún var alveg einstaklega ljúf. Við biðjumst velvirðingar á nefmælskunni í okkur, en kvefið bankaði uppá hjá okkur og lítið sem ekkert sem við gátum við því gert. En Lára kom með eitt stykki banger frá Bandaríkjunum. Hún fjallaði um the Briley Brothers og vá, hvað gekk eiginlega á hjá þeim? Stella smellti sér til Hvíta-Rússlands og sagði frá einum klassískum raðmorðingja að nafni Gennedy Mikhasevich.Við vonum að þið hafið gaman af,Takk fyrir að hlusta...more57minPlay
April 28, 202133. Krakkhausar og Nunnur33 - Lukkutalan svarar.Bjórinn í dag er eitt stykki hélaður Hundur frá Viking.Stella sagði frá málinu sem kom henni á true crime vagninn en það er málið um The West Memphis 3. Mjög mikið satanískt shit sem átti sér stað þar. Lára hélt sig við Evrópu og tók Rúmenska neglu. Þar voru nunnur og kannski smá satanískt vibe líka.Þarf alltaf að vera satan?Takk fyrir að hlusta og ef þið eruð í spariskapi endilega gefið okkur stjörnur eða ummæli eða sendið okkur good vibes.facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more1h 4minPlay
April 24, 2021Smámál 3 - DraugarJæja morðfýlur. Ekki svo mikið smámál nr. 3 er komið í gagnasafnið. Sturlaður þáttur að okkar mati, dæmi hver fyrir sig. Hlusaðu og láttu okkur vita hvað þér finnst.Ekki vera feiminn, vertu frekar hrædd/ur við draugana sem eru í kringum þig. Já, því við erum svo aldeilis ekki ein á þessari jörð ef þú heldur það.Skál fyrir þér og góða helgi kæri vinur, takk fyrir að hlusta.facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more36minPlay
April 21, 202132. Fljúgandi Limir og Eistu vol.IIMorðaforða Miðvikudagur mættur enn á ný. Halelúja! En það er óvenjulega stuttur þáttur í dag, við biðjumst velvirðingar á því en bætum upp fyrir það með smámáli sem kemur út á laugardaginn. HALDIÐ YKKUR FAST!Í þessum þætti tekur Stella fyrir eistneskt mál og segir frá honum Johannes-Andreas Hanni. Hvílíkur og annar eins viðbjóður!Takk fyrir að hlusta og fyrir að vera þið sjálf. facebook.com/mordafordiinstagram.com/mordafordi...more28minPlay
FAQs about Morðaforði:How many episodes does Morðaforði have?The podcast currently has 44 episodes available.