Faðirvorahlaupið er einn af föstum viðburðum Djúpavogs á Dögum myrkurs. Nafn hlaupsins á sér skemmtilega sögu og fyrirmynd þess líka. Stefán Jónsson rithöfundur, alþingismaður og útvarpsmaður lýsti því í bók sinni Að breyta fjalli þegar hann hljóp frá Teigarhorni heim til sín í Rjóður og gerði það á þremur faðivorum, teygðum.