Í Tengivagninum í dag erum við með hugann við myndasögur og myndlæsi.
Salka Guðmundsdóttir, leikskáld og þýðandi, mælir með þremur bókum sem hafa heillað hana, þar á meðal er ein myndasaga.
Við heimsækjum líka Elísabetu Rún Þorsteinsdóttur, sem er útskrifaður teiknari frá Myndlistarskólanum í Reykjavík en er nú á leið í frekara nám þar sem hún ætlar að einbeita sér að fréttamyndasagnagerð.
Rætt verður við Dag Sævarsson myndlistarmann um myndlæsi, en í mastersverkefni sínu í Listkennslu við Listaháskóla Íslands smíðaði hann námsefni sem gæti gagnast við kennslu myndlæsis í grunnskóla.
Við fræðumst um myndasöguna Sabrina sem er fyrsta myndasagan til að vera tilnefnd til hinna bresku Booker-bókmenntaverðlauna í 50 ára sögu þeirra.
Úr safni Ríkisútvarpsins gröfum við upp fræðslu um hvernig njóta skal myndverka, brot úr þættinum Leiftur úr listasögunni með Birni Th. Björnssyni (1981)