Mannkynið hefur raskað um 97 prósentum af upprunalegum vistkerfum jarðarinnar. Þetta hefur valdið því að stórir hópar dýra- og plöntutegunda hafa misst búsvæði sín og kjörlendi og neyðst til að flytja sig á nýjar slóðir sem eru þeim ekki endilega æskilegar. Þá telja fjölmargir vísindamenn að við stöndum nú á barmi sjöttu fjöldaútrýmingar dýra- og plöntutegunda. Slíkar útrýmingarhrinur hafa átt sér stað fimm sinnum áður og hafa í öll skiptin endað með ósköpum fyrir líf- og vistkerfi jarðarinnar.
Í fjórða þætti seríunnar Orðin sem við skiljum ekki, sem byggð er á bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið, fjallar Þorvaldur S. Helgason um sjöttu fjöldaútrýminguna og tengsl mannkynsins við náttúruna. Hvernig getum við borið siðferðislega ábyrgð á þeim hörmungum sem við erum að leysa úr læðingi í vistkerfum jarðarinnar og hvernig getum við brúað bilið á milli náttúru og mannlífs? Viðmælendur þáttarins eru Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands, og Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki.
Umsjón: Þorvaldur S. Helgason
Tónlist: Högni Egilsson.
Upplestur: Tómas Ævar Ólafsson.
Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.