Í þættinum ræði ég við Elfi Sunnu Baldursdóttur, myndlistarnema, en hún búsett í Amsterdam, við ræðum plastneyslu og hún deilir með okkur þeim leiðum sem hún fer til þess að lifa umhverfisvænna lífi. Elfur hefur búið á hinum ýmsu stöðum, þar á meðal Berlín, Amsterdam, Reykjavík og Akureyri og við veltum fyrir okkur hver munurinn er þar á þegar kemur að flokkun á heimilissorpi. Þar eru farnar ólíkar leiðir, en við komumst að því að þessir staðir eigi það sameiginlegt að alltaf er ábyrgðinni komið yfir á neytandan. Hann á að passa upp á að flokka heima hjá sér, en á móti virðist vanta að verslanir og fyrirtæki taki ábyrgð sín megin og hætti að nota plast og aðrar einnota pakkningar í svo miklu mæli.