Viðmælendur eru Sigrún Ægisdóttir hárgreiðslumeistari og Birgir Helgason fyrrverandi starfsmaður Heimilstækja. Auk þess heyrast í þættinum brot úr Spaugstofuþætti í sjónvarpinu frá haustdögum 2008.
Viðmælendur eru Ynda Gestsson listfræðingur og Sigríður Gísladóttir dýralæknir, auk þess sem heyrðist í Þorbirni Ólafssyni sem nam markaðsfræði í Danmörku fyrir 10 árum.
Viðmælendur: Golli, fyrrverandi ljósmyndari á Morgunblaðinu og Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður á Ríkisútvarpinu.
Umsjón: Guðni Tómasson og Þorgerður E. Sigurðardóttir.
11 min
About Nokkrir dagar í frjálsu falli
From the publisher's feed
Fyrir tíu árum féllu íslensku bankarnir einn af öðrum á nokkrum dögum eins og dómínókubbar. Íslenska ríkið tók yfir rekstur bankanna en enginn sá fyrir hverjar afleiðingarnar yrðu fyrir íslenskt samfélag og sjálfsmynd landsmanna. Atburðirnir gerðust hratt og óvissan var mikil. Í þáttunum Nokkrir dagar í frjálsu falli verða atburðir daganna í kringum mánaðarmótin september-október árið 2008 rifjaðir upp. Viðmælendur í þáttunum segja frá sýn sinni á hræingarnar og velta vöngum yfir óvissunni sem þá ríkti í samfélaginu.
Umsjón: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Guðni Tómasson.