Handboltinn okkar

Nýtt tímabil – farið yfir sviðið í karlaboltanum


Listen Later

Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í studíoið sit og tóku upp sinn fyrsta þátt á nýju tímabili.  Að þessu sinni kynntu þeir félagar nýjan meðlim í hópinn en Kristinn Guðmundsson mun vera með þeim í vetur.  Í þessum fyrsta þætti fóru þeir yfir sviðið á karlaboltanum og fóru yfir helstu breytingar á liðnunum í Olísdeild karla.

 Seinni hluti þáttarins fór svo í það að ræða Grill66 deild karla þar sem stærstu fréttirnar eru án efa þjálfararáðning Þórs.  En þeir félagar rættu það ítarlega hvort Þórsarar væru á réttri leið. Annað spennandi lið í deildinni er Hörður en Ísfirðingar ætla sér stóra hluti í vetur og hafa sótt sér spennandi leikmenn í sumar og þeir félagar ganga svo langt að spá að lið frá Ísafirði verði í Olísdeildinni tímabilið 2022-2023.

Þá spáðu þeir félagar aðeins í úrslitaleikina á Ólympíuleiknum þar sem þeir spá því að báðar viðureignir eigi eftir að vera gríðarlega spennandi og ráðist á lokasekúndum leiksins.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar