Skyndibitinn

Ógleðin leiðir í ljós tilgangsleysi verunnar


Listen Later

Í þætti dagsins er umræðuefnið fyrsta skáldsaga franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre, La Nausée eða Ógleðin (1938). Sagan fjallar um ungan mann að nafni Roquentin sem á ekki í samskiptum við marga. Hann er einmana og temur sér frekar að fylgjast með athöfnum og hegðun annarra en að eiga við þá samskipti. Allt í einu hellist yfir hann ógleði. Flökurleikinn virðist bæði gerjast innra með honum sjálfum en einnig umhverfis hann. Í anda Dalí málverka er eins og umhverfið ummyndist í kringum Roquentin. Hann hættir að geta ákvarðað merkingu hluta og þá afhjúpast ógnvekjandi óútreiknanlegur veruleiki.
Rýnt er í þessa heimspekilegu skáldsögu Sartres í þætti dagsins.
Viðmælandi er Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.
Skyndibitinn er pizza.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkyndibitinnBy RÚV