Mím getur verið mynd, mynd með texta, myndband og jafnvel lag. Mím geta verið fyndin, skrýtin og hugvitsamleg og vel heppnað mím getur vakið fólk til umhugsunar um það sem því er ætlað að sýna og þannig haft áhrif á skoðanir og viðhorf. Í þættinum er fjallað um orðið mím, sögu þess og merkingu, með aðstoð Atla Fannars Bjarkasonar, verkefnastjóra samfélagsmiðla RÚV, og Elds Myrkva Óttarssonar, 14 ára, sem má segja að sé sérfræðingur í sínum aldursflokki.