Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Þáttur um íslensku og önnur mál.Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir... more
FAQs about Orð af orði:How many episodes does Orð af orði have?The podcast currently has 444 episodes available.
June 29, 2025Daglegt mál 08 – Eyrir, sem, að/afÞað er rangt að segja: Ég á ekki einn einasta aur. Rétt væri: Ég á ekki einn einasta eyri. Þetta sagði Grímur Helgason í útvarpsþættinum Daglegu máli árið 1956. Hann fjallar líka um sögnina lána; tilvísunarorðið sem; og forsetningarnar að og af. Guðrún og Anna skoða orðin eyrir og aur; og reglur um notkun að og af í ýmsum orðasamböndum með tilliti til erinda Gríms....more32minPlay
June 22, 2025Daglegt mál 07 um fólk, gröft og fiskÁrni Böðvarsson ræddi í Daglegu máli í febrúar 1955 um eintöluorð eins og fólk, flokkur, fjöldi og þjóð sem hafa fleirtölumerkingu en taka með sér sagnir og ákvæðisorð í eintölu, til dæmis fjöldinn allur af fólki safnaðist saman en ekki söfnuðust saman. Hann ræddi líka um beygingu orðanna gröftur og fiskur og þar má segja að sé fiskur undir steini....more32minPlay
June 15, 2025Daglegt mál 06 – sinn hvor, sinn hver og fleiraBaldur Jónsson hafði umsjón með Daglegu máli árið 1968. Hann fjallaði um orðin nót og aldinkjöt í einum þáttanna og spurði hlustendur um nafn á áhaldi sem hafði ekkert heiti.Í öðrum þætti var umfjöllunarefnið kurteisi og orðalagið „njóttu vel“. Og í enn öðrum þætti var viðfangsefnið samnotkun fornafnanna sinn og hvor eða hver....more31minPlay
June 08, 2025Daglegt mál 05 um beygingu nafnaÞér skuluð fara upp á næstu hæð og tala við hana Unnur, sagði afgreiðslumaður við Árna Böðvarsson, þegar hann var í einhverjum ónefndum erindagjörðum á skrifstofu í Reykjavík árið 1954. Þeir Eiríkur Hreinn Finnbogason fjalla um beygingar mannanafna í útvarpsþættinum Daglegu máli....more32minPlay
June 01, 2025Daglegt mál 04 um áhrif frá ensku á íslensku og um kansellístílHelgi J. Halldórsson fjallaði um áhrif ensku á íslensku í Daglegu máli í apríl 1974. Hann ræddi líka um kansellístíl og minnti á mikilvægi þess að hafa málsgreinar stuttar og skýrar. Loks hugaði hann að merkingu og notkun sagnanna forða og krauma....more31minPlay
FAQs about Orð af orði:How many episodes does Orð af orði have?The podcast currently has 444 episodes available.