Burstabann, dagskrárvald, drægnikvíði, hamfarahlýnun, hrossamakríll, kynrænt sjálfræði, ljósbogi, loftslagskvíði, mjaldrasystur, pokasvæði, sprengilægð og þungunarrof komu til greina sem orð ársins í nýafstaðinni kosningu Ríkisútvarpsins. Kosningunni lauk 3. janúar og verða niðurstöðurnar birtar föstudaginn 10. janúar við afhendingu menningarviðurkenninga RÚV. Í þættinum er skoðað hvaðan þessi orð koma og hvað þau merkja.