Kínverski draumurinn

Kínverski draumurinn

Download on the App Store

Kínverski draumurinn episodes

  • Latína og íslenska
    Orð af orði, þáttur um íslensku og önnur mál. Í þætti dagsins verður rætt um hið forna heimsmál latínu, nokkur sameiginleg einkenni þess og íslensku og margvísleg áhrif latínunnar bæði á íslenskt mál og menningu. Rætt er við aðjúnkt í latínu við Háskóla Íslands, meðal annars um gildi latínunnar í nútímanum. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
    0 min
  • Orðið eskimói og önnur vandræðaorð
    Þáttur um íslensku og önnur mál. Í þættinum er fjallað um orðið eskimói og önnur vandræðaorð; og um eskimó-aljúta málaættina, einkum þann anga hennar sem er okkur næstur: grænlensku. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
    0 min
  • Alþjóðlegi tungumáladagurinn
    Í tilefni af evrópska tungumáladeginum sem var í gær verður haldið áfram að skoða tungumál álfunnar, og í þetta sinn eina stakmálið í Evrópu - basknesku. Þar koma einnig við sögu íslenskir bændur á Vestfjörðum fyrir um fjögur hundruð árum. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
    0 min
  • 20.09.2020
    Orð af orði, þáttur um íslensku og önnur mál. Í þættinum er fjallað um sögu og framtíð afríkönsku, sem einnig hefur verið kölluð búamál og afríkans á íslensku. Afríkanska er vesturgermanskt tungumál, dótturmál hollensku, sem talað er í Suður-Afríku. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
    0 min
  • Indó-evrópska málaættin og Rask
    Í þættinum í dag kynnumst við lítillega stærstu málaætt heims, þeirri sem íslenska tilheyrir, indó-evrópsku málaættinni. Sömuleiðis verður rætt um upphaf fræðigreinarinnar samanburðarmálfræði og þátt Íslandsvinarins Rasmusar Christians Rask í þróun hennar og verndun íslenskunnar. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
    0 min
  • Tilberi, ótili og Tilbury
    Orð af orði, þáttur um íslensku og önnur mál. Í þættinum í dag verður fjallað um undarlegt kvikindi í íslenskri þjóðtrú. Meðal þess sem kemur við sögu er bretavinnan svokallaða; strokkar og skilvindur í íbúð í vesturbænum í Reykjavík; nafnorðin tili og beri; og hin fjölhæfa sögn bera. Umsjón: Bjarni Benedikt Björnsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
    0 min
  • Belti og braut
    Þáttaröð um kínverska menningu og kínversk stjórnmál sem veita innsæi í kínverskt samfélag. Vegna aukinnar hnattvæðingar og umsvifa Kína í nærumhverfi Íslands, bæði á norðurslóðum og í Evrópu, er enn mikilvægara en áður að Íslendingar fái innsýn í hugarheim Kínverja og kínverskra stjórnvalda. Fjallað er sérstaklega um kínverska drauminn, kínverska ungmennamenningu og samfélagsmiðla, mótmælahreyfinguna í Hong Kong, Belti og Braut og áhrif Kína á norðurslóðum. Þáttastjórnendur eru alþjóðastjórnmálafræðingar sem eru sérhæfðir í málefnum Kína og hafa búið þar. Rætt er við Egil Þór Níelsson.
    Umsjón: Alda Elísa Andersen og Guðbjörg Ríkey Thoroddssen Hauksdóttir.
    40 min
  • Hong Kong
    Í þriðja þætti er fjallað um mótmælahreyfinguna í Hong Kong sem byrjaði í júni á síðasta ári. Kveikjan að mótmælunum var umdeilt framsalsfrumvarp sem var sett fram af heimastjórninni í Hong Kong. Frumvarpið varð strax mjög umdeilt fyrir að heimila framsal á afbrotamönnum í Hong Kong til meginlands Kína. Með tímanum þróuðust mótmælin yfir í kröfur um auknar lýðræðisumbætur og sjálfstæða rannsókn á aðgerðum lögreglunnar gegn mótmælendum. Til þess að skyggnast betur inn í hugarheim mótmælenda ræddum við við aktívistann Glacier Kwong um mótmælahreyfinguna og hvernig hin nýju öryggislög hröktu hana frá Hong Kong. Við ræddum einnig við Simon Shen, prófessor í alþjóðastjórnmálafræði við Kínverska Háskólann í Hong Kong, um öryggislögin og hvernig spennan á milli Bandaríkjanna og Kína hefur haft áhrif á sjálfstjórnarhéraðið Hong Kong.
    Umsjón: Alda Elísa Andersen og Guðbjörg Ríkey Thoroddssen Hauksdóttir.
    40 min
  • Hiphop, samfélagsmiðar og ritskoðun
    Í öðrum þætti er fjallað um ungmennamenningu, kínverskt hiphop, samfélagsmiðla, ritskoðun og #metoo hreyfinga í Kína. Viðmælandi: Stefanía Guðrún Halldórsdóttir fyrrum yfirþróunarstjóri CCP í Kína.
    Umsjón: Alda Elísa Andersen og Guðbjörg Ríkey Thoroddssen Hauksdóttir.
    40 min
  • Xi Jinping og hundrað ára niðurlægingin
    Í fyrsta þætti er fjallað um hugtakið Kínverska drauminn sem er meginstefið í hugmyndafræði Xi Jinping, forseta alþýðulýðveldisins Kína. Hver einasti leiðtogi Kína hefur notast við hugmyndafræði eða slagorð sem einkennir þeirra valdatíð. Fyrir Deng Xiaoping, var það opnunarstefna og umbætur, fyrir Hu Jintao, forvera Xi Jinping, var það samfélag með samhljóm. Fyrir Xi Jinping, er það kínverski draumurinn. Viðmælandi: Magnús Björnsson, forstöðumaður Konfúsíusarstofnunnar.
    Umsjón: Alda Elísa Andersen og Guðbjörg Ríkey Thoroddssen Hauksdóttir.
    40 min

About Kínverski draumurinn

From the publisher's feed

Þáttaröð um kínverska menningu og stjórnmál sem veita innsæi í kínverskt samfélag. Vegna aukinnar hnattvæðingar og umsvifa Kína í nærumhverfi Íslands, bæði á norðurslóðum og í Evrópu, er enn mikilvægara en áður að Íslendingar fái innsýn í hugarheim Kínverja og kínverskra stjórnvalda. Fjallað er sérstaklega um kínverska drauminn, þjóðerniskennd Kínverja, mótmælahreyfinguna í Hong Kong, belti og braut og áhrif Kína á norðurslóðum. Þáttastjórnendur eru alþjóðastjórnmálafræðingar sem eru sérhæfðir í málefnum Kína og hafa búið þar.