Gestir Lestarklefans eru Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður, Gunnar Helgason rithöfundur og leikstjóri og Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas, leikmyndahönnuður. Nýafstaðin Óskarsverðlaunahátíð, þar sem Hildur Guðnadóttir hlaut verðlaun fyrir tónlistina í Joker, var til umræðu sem og kvikmyndin Parasite sem valin var besta myndin og að lokum var rætt um sjónvarpsþættina Brot.
Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson