Óvanaleg heimili, litbrigði mannkyns og Svikaskáld eru meðal efnis Tengivagnsins í dag.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að skoða litbrigði mannkyns - til sálar og líkama í pistli sínum í dag.
Við veltum vöngum yfir óvanalegum heimilum, þá sér í lagi heimilum sem fylgja ákveðnum störfum - eins og t.d. starfi húsvarðar eða forstöðufólks af ýmsum toga. Að gefnu tilefni heimsækjum við Árbæjarsafnið en hefð er fyrir því að ráðsmenn safnsins búi í einu húsa þess. Við ræðum við þrjá starfsmenn safnsins sem hafa búið á safninum á einum eða öðrum tíma.
Í síðari hluta þáttarins fáum við síðan til okkar þrjá meðlimi Svikaskálda Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Sunnu Dís Másdóttur og Melkorku Ólafsdóttur til að ræða lífið og listina út frá þemanu rætur.