Árni Benediksson stórkaupmaður var sveitastrákur að vestan sem átti magnaða lífssögu og í þessum þætti segir Páll frá þessum föðurafa sínum sem hann kynntist aldrei. Árni er fyrirferðamikill í fjölskyldusögu Páls, þrátt fyrir að hafa horfið úr lífi ömmu hans, Kristrúnu Tómasdóttur Hallgrímsson árið 1921. Páll sendi frá sér bókina Loftklukkan árið 2015 þar sem fjölskyldusagan er rakin að hluta. Í þættunum er leikið lagið: Sweet Georgia Brown sem var eitt af vinsælustu lögum þriðja áratugarins í Bandaríkjunum. Flytjandi: Johnny Mercer Umsjón: Margrét Blöndal.