Party Zone - Undir diskókúlunni : 19. júlí
Við hefjum þáttinn á geggjaðri diskóþrennu og förum svo útí frímínútur með allskonar dansbombum fortíðar. Dansárið 2000 verður rifjað upp ásamt því að við kíkjum á skemmtistaðinn Pravda í kringum árið 2006. Topplög PZ listans fyrir 30, 25 og 10 árum verða spiluð. Vegna fjölda árskoranna munum við spila aðra upptöku frá rosalegu "PartyZone´95" kvöldi á Jacobsen sumarið 2009 sem við fundum í safni þáttarins fyrir stuttu.