Við förum aftur til dansársins 1993, förum inná skemmtistaðinn Hollywood í fyrri hluta níunda áratugarins í fylgd DJ Magnúsar Viðars Sigurðssonar en hann var oftar enn ekki fyrir aftan spilarana á þeim goðssagnakennda stað á þessum árum. Þar að auki hristum við kokteil kvöldsins, spilum diskótvennuna og förum út í frímínútur með þáttarstjórnendum. Takk fyrir að hlusta í sumar!