Verslunarmannahelgardiskókúlan snýst! Lokaþátturinn okkar á Rás 2 í sumar og í raun uppklappsþáttur þar sem við áttum bara að vera í loftinu í júní og júlí Sister Sledge sjá um diskóþrennuna, við spilum hvern dansslagarann á fætur öðrum í tveimur frímínútum. Við förum á skemmtistaðina Hollywood 1982 og á Tunglið 1991. Siðan valhoppum við í gegnum nokkrar verslunarmannahelgarhátíðir á tíunda áratugnum þar sem danstónlist og diskókúlur voru við lýði, n.t.t. Eldborg 92, Uxi 95, Skjálfti 98. Ómissandi nostalgía og dans fyrir landsmenn á faraldsfæti.