
Sign up to save your podcasts
Or


Party Zone: September 1999
Plötusnúður: Pétur
Party Zone: Margeir + Andrés
Útgáfudagur, sumar 1997. Útgefandi Japis/PZ Plötusnúðar: Andrés og Margeir
Loksins gáfum við út disk um sumar en þessi kom út rétt eftir verslunarmannhelgina. Útgáfuhátíðin fer eins og hinar þrjár á spjöld sögunnar sem eitt af bestu kvöldum þáttarins og þótt víðar væri leitað. Við ákváðum að halda hana í "gini ljónsins", þ.e. í höfuðvígi hnakkana á þessum tíma, Skuggabarnum á Hótel Borg. Það er skemmst frá því að segja að staðurinn var lagður í rúst á þessu ógleymanlega kvöldi þar sem senan komst í gott og skemmtilegt návígi við hinn almenna borgara.
Diskurinn var sumarplata talsvert á undan sinni samtíð þar sem um var að ræða latin/jazz skotna húsblöndu með 70´s fíling. Það var talsvert síðar sem danspoppið fór yfir í þessar pælingar. Tækninni hafði líka fleytt fram (hehe) og var diskurinn tekinn upp í heimahúsi í einni töku sem gefur honum skemmilegt krydd, Margeir og Andrés smellpössuðu í þessa pælingu. Salan á disknum var mjög góð þar sem lög af honum fengu allgóða spilun í útvarpi fram eftir haustinu. Hann á enn heima í spilaranum enda klassík....skoðið bara lagalistann, uppfullur af múmíum.
PartyZone ´96
Útgáfudagur 18.okt 1996. Útgefandi: Japis/PZ Plötusnúðar: Frímann og Grétar
Hér beindum við sjónum okkar að þyngri hluta þáttarins og var allt útlit disksins haft hugsað með það í huga. Dark og underground en samt vandað og klassískt er megin línan hér. Ógleymanleg útgáfuhátíð á skemmtistaðnum Tetris sem þá var og hét í Fishersundi var haldin föstudag og laugardag í október. Eitt af síðustu ólöglegu rave-unum var síðan haldið á laugardagsnóttina í samkomusal flugmálastjórnar í Nauthólsvík. Diskurinn hefur eins og hinir elst ótrúlega vel og frábær heimild um tónlistina á þessum tíma sem var um margt erfiður fyrir danssenuna eftir að hún að segja "sprakk á limminu" í byrjun árs 1996. Þátturinn og kvöld hans voru nánast það eina sem hélt sínu striki.
From the publisher's feed

18 Listeners

27 Listeners

17 Listeners