PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

By oli.is - fyrir PartyZone 2001 - 2026Music
Download on the App Store

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar episodes

  • Safndiskurinn PartyZone´95

    Party Zone ´95

    Útgáfudagur 15.okt 1995. Útgefandi: Skífan/PZ Plötusnúðar: Margeir og Árni E

    Þátturinn náði hátindi hvað hlustun og vinsældir snertir þetta ár enda upphafshjörð danssenunnar í trylltum fíling á Rósenberg, Tunglinu, Ingólfscafé, Síberíu og á atburðum eins og UXA, Lokakvöldi Rósenberg, Masters At Work og Party Zone kvöldunum sem voru risastór á þessum tíma. Þátturinn var á X-inu á þessum tíma og var 4 tíma prógram. Þátturinn hafði slitið barnskónum enda orðinn 5 ára gamall. Útgáfuhátíðin var haldin í nóvember 1995 einum 2 vikum eftir komu Masters At Work til landsins á okkar vegum. Vinsældir þáttarins á þessum tíma koma bersýnilega í ljós þegar þessar staðreyndir eru skoðaðar. Þátturinn setur aðsóknar met á Tunglinu + Rósenberg tvisvar sinnum með tveggja vikna millibili, þ.e. Masters At Work á afmælishátíðinni og síðan útgáfuhátíðinni með þeim Margeiri og Árna E. Diskurinn seldist vel og komst á útgáfuvikunni í toppsæti Íslenska breiðskífulistans og sat þar í tvær vikur í nóvember. Þessi snilldardiskur er uppseldur í dag. Umslagið við diskinn fékk sömuleiðis mikla athygli og var valið plötuumslag ársins í úttekt morgunblaðsins á þeim geira. Við vinnslu disksins kom ýmislegt upp, dæmi að ef hlustað er á endi disksins þá þurftu að einfaldlega slökkva á spilurunum þar sem enginn annar en Bo Hall þurfti að nota hljóðverið og bað um að þessum plötusnúðum yrði "hent út". Einnig má nefna að þeir Margeir og Árni notuðu ekki öll lögin sem leyfi var komið fyrir, eitt af þeim, Skífumönnum til mikillar armæðu, var Higher States of Conciuesness með Josh Wink eitt vinsælasta lag landsins á útgáfudegi diskins.

    Tracklist
    • Todd Terry - A day in life (street mix)
    • Lés Negresses Vertez (sparze beats (tee´s frozen mix) - Apres la Pluie
    • Ruffneck featuring "yavahn" - Everybody Wants to be somebody
    • Roach Motel - Work 2 Do
    • Ken Lou - Moonshine (orginal Maw mix)
    • De´Lacy - Hideaway (dubfire needs to score)
    • Incognito - Everyday (Rogers supreme mix)
    • 7th Movement - Odyssey
    • G-Funk - Misused (Johnny Vicious mix)
    • SWAG - Dark Corners (version 1)
    • Celvin Rotane - I Believe (dub)
    • The Mole People - Break Night
    1 hr 15 min
  • Safndiskurinn PartyZone´94

    Party Zone ´94

    Útgáfudagur 15.feb 1995. Útgefandi: Skífan/PZ Plötusnúðar: Margeir og Grétar

    Hér er í raun um sögulegan disk að ræða. Á þessum tíma mátti telja á fingri annarar handar diska sem settir voru saman af plötusnúðum og "mixaðir" í samfellt flæði. Þetta var mikið frumkvöðla starf sem þarna var í gangi. Einnig var hönnun á umslagi tilnefnd til verðlauna meðal grafískra hönnuða, Jökull Tómasson, átti heiðurinn af því. Útgáfuhátíðin var haldin á Tunglinu og það var gríðarleg stemming í kringum útgáfuna, það mættu um 1500 manns á þetta kvöld á Tunglinu. Alger klassík í dag..enda uppseldur fyrir löngu.

    Tracklist
    • Sagat - Luvstuff (Maxi Dub)
    • Jamiroquai - Emergency on Planet Earth (London Rican MAW Mix)
    • South Street Players - Who keeps changing your Mind (Fresh Fruit Dub)
    • D:Mob - One Day (Erick "More" Reel 2 Dib Mix)
    • HeadRush - Underground (King-Size mix)
    • S.U.A.D. - Shut up & Dance
    • Transglobal Underground - Lookee Here (Dread Zone Remix)
    • River Ocean feat India -Love & Happiness (Junior Boys Own Super Dub)
    • Paperclip People - Throw
    • Scope - In the Arms of Love (B + B mix)
    • Fire Island feat Love Nelson - There But for the Grace of God (Roach Motel Dub)
    • Aprohead - In the dark we Live (three lite) (King-Size Aphrohead mix)
    • Phuture Scope - What is house muzik (Wild Pitch mix)
    1 hr 16 min

About PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

From the publisher's feed

PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar er alltaf á dagskrá

More shows like PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners