Þættirnir okkar í júlí sem báru þemaheitið PartyZone´95 slógu alveg í gegn og var ákveðið að skella í einn aukaþátt um Verslunnarmannahelgina. Við verðum í beinni útsendingu frá Innipúkanum í Reykjavík, en við hreiðrum um okkur á Skemmtistaðnum Röntgen á Hverfisgötu. Drekkhlaðinn þáttur handa ykkur Ásamt því að taka stöðuna á hátíðinni munum við handvelja 90´s klassikera sem við náðum ekki að koma til skila í þáttunum okkar í júlí. PartyZone verður áberandi á hátíðinni í ár þar sem Frimann og Yamaho munu loka hátíðinni á Sunnudagskvöldið með PartyZone´95 þemanu. Við verðum með Dj sett frá þeim í þættinum til að hita ykkur upp. DJ Andrés sem einnig er að spila á hátíðinni undir merkjum Más & Nielsen velur skemmtilega 90s lagaþrennu.