
Sign up to save your podcasts
Or


Jaðarpersónuleikaröskun, narsisimi, siðblinda og fleira.
Hér er smá aukaþáttur í tengslum við Poppsálarþáttinn um súpermömmuna sem hvarf sem gefinn var út 2. maí.
Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu.
Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út.
Þetta er gamall áskriftarþáttur en birtist hér í fullri lengd.
Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum!
Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri.
Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur
Í þessum þætti verður áfram fjallað um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum.
Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur og tengist eldri þætti um Incels sem nefnist: "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"
Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu?
Þetta er gamall þáttur og var áður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Þátturinn tengist öðrum þætti sem nefnist: Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf
Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar.
Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á Norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku.
Þátturinn er á köflum frekar lýsandi og gæti verið erfiður fyrir suma.
(Þetta er gamall þáttur sem áður var eingöngu í boði fyrir áskrifendur)
Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur.
Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum.
Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum.
Lokaþáttur Poppsálarinnar (í bili allavega).
TW: Átraskanir
Í þessum þætti verður fjallað um endurkomu 90s tískunnar eða aldamótatískunnar. Rætt verður um fegurðarviðmið þess tíma og tengslin við gríðarlega aukningu á átröskunartilfellum á tímum Covid-19.
Takk kærlega fyrir að hlusta elsku Poppsálar hlustendur. Ef þið hafið áhuga á fleiri þáttum þá má finna um 15 aukaþætti inni á Patreon.com
Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe, oft þekktur sem Yorkshire Ripper.
Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum.
Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum.
Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér:
https://www.patreon.com/Poppsalin
From the publisher's feed
Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan…