Punktur og basta

Punktur og basta

By VísirSportsSoccer
Download on the App Store

Punktur og basta episodes

  • Punktur og Basta - 26. umferð
    Árni, sem staddur er á Ítalíu um þessar mundir hringdi til Danmerkur þar sem hann fékk Björn Már til að fara ofan í saumana á nýjasta máli Mourinho. Eru Inter í stjóraleit? Allt um 26. umferð Seriu A og Íslendingur í úrslitum Coppa Italia.
    57 min
  • Punktur og Basta - Plusvalenza og 19. umferðin
    Í þætti vikunnar fóru strákarnir um víðan völl. Þeir ræddu að sjálfsögðu refsingu ítalska knattspyrnusambandsins gegn Juventus vegna brota á félagaskiptareglum deildarinnar. Þá fóru þeir yfir helstu vendingar í toppbárattunni og í lokin settu þeir saman úrvalslið vonarstjarna Ítala yngri en 21 árs.
    1 hr 20 min
  • Punktur og Basta - 18. umferð
    Í þessum þætti af Punkti og Basta var farið yfir 18. umferðina í ítalska boltanum sem lýkur með formlegum hætti í kvöld. Stærsti leikur umferðarinnar var án alls efa toppslagur milli Napoli og Juventus þar sem Napoli liðið tók gömlu frúnna frá Torino í kennslustund. Einnig ræddu þeir Árni, Björn og Þorgeir, helstu slúðursögur deildarinnar og í lokin fóru þeir yfir það besta í mat af völlunum í Serie A.
    1 hr 4 min
  • Punktur og Basta með Gumma Ben
    Í þættinum fengu Árni og Þorgeir, Gumma Ben til að rýna í stórleik helgarinnar, Napoli - Juventus, sem Gummi lýsir í kvöld. Leikurinn er afar mikilvægur í titilbaráttu liðanna. Einnig fóru þeir yfir dálæti Gumma á ítalska boltanum og stöðu Alberts hjá Genoa.
    59 min
  • Punktur og Basta - Sigurganga Juve heldur áfram (17. umferðin)
    Strákarnir í Punkti og Basta fóru yfir sviðið á Ítalíu þegar tæpar 17. umferðir eru liðnar af tímabilinu. Þar ber hæst 8 leikja sigurganga Juventus en mikið drama var undir lok leikja eins og vaninn er á Ítalíu, Roma krækti í stig gegn AC Milan í stórleik helgarinnar þrátt fyrir skelfilega frammistöðu í 80 mínútur.
    58 min
  • Punktur og Basta - Juventus krísan og 16. umferð
    Ítalski boltinn farinn að rúlla á ný og strákarnir Punktur og Basta eru mættir aftur til leiks eftir 7 vikna pásu. Mikið gerðist í pásunni góðu en efst á baugi voru málefni Juventus sem aftur eru komin í klandur eftir sigursæl ár. Þeir Árni og Þorgeir fengu Val Pál Eiríksson, íþróttafréttamann á Vísi og Stöð2 til að kafa dýpra ofan í vandræði Juve.
    1 hr 19 min

About Punktur og basta

From the publisher's feed

Þáttur um ítalskan fótbolta þar sem farið er yfir helstu listkúnstir hverjar umferðar í Serie A. Umsjónarmenn Punkts og basta eru þeir Árni Þórður Randversson, Þorgeir Logason og Björn Már Ólafsson.