
Sign up to save your podcasts
Or


Hún er skilgreiningin á power lady. Hún er einlæg, kraftmikil, skörp, hjartahlý, klár og skemmtileg og hún er einnig dómsmálaráðherra okkar Íslendinga. Hún er Áslaug Arna og var fertugasti viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, hvernig lífið og hennar eigin heimur hefur breyst undanfarnar vikur eftir að hún tók við þessu stóra embætti, hver hún sem 28 ára kona er, hvenær áhuginn á pólítík kviknaði, hvað hefur mótað hana að þeirri manneskju sem hún er, fyrirmyndir, innblástur, daglegt líf og svo margt fleira áhugavert og skemmtilegt. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er legend í leiknum, konan bakvið mic-inn, eldklár og hnyttin, yndisleg og vel gefin og með betri spyrlum okkar Íslendinga, þar sem hún hefur dregið ófáa þekkta og skemmtilega einstaklinga með sér í ræktina með cameru crew-i og fengið þá til þess að opna sig um hin ýmsu mál. Hún er Birna María Másdóttir, betur þekkt sem MC Bibba, og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um tilkomu Gym þáttanna, uppruna nafnsins MC Bibba, hvað veitir gleði, innblástur, fyrirmyndir, sigra, rapp og margt fleira sjúklega skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er dásamleg manneskja með yndislega rödd og sjarma for dayzzz. Hún er einstaklega einlæg og mögnuð á sama tíma - enda helst það oft í hendur, opinská með andlega heilsu og mikilvægi þess að opna umræðu um allt tabú sem henni getur fylgt. Hún er Karin Sveinsdóttir, einnig þekkt sem söngkonan Young Karin, og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, væntanlega tónlist, alter ego, Young Karin verkefnið frá byrjun, tísku og listir, innblástur og fyrirmyndir, andleg veikindi og hvað lífið getur breyst stórkostlega við það að leita sér hjálpar þegar þörf er á. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er mögnuð söngkona með sjarma og hjartahlýju á öðru leveli. Hún er samfélagsmiðla icon, power babe og legend í leiknum. Hún er Camilla Rut, betur þekkt sem Camy og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um svo margt frábært, mikilvægi þess að vera góður og koma fram við aðra af virðingu, hafa opinn hug, andlega líðan, sjálfsást og kærleik, innblástur, kosti og galla samfélagsmiðla, hvernig það er að vera opinber einstaklingur í íslensku samfélagi, standa með sjálfri sér og missa aldrei svefn yfir áliti annarra, móðurhlutverkið, sönginn og svo margt fleira djúpt og dásamlegt. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fagkona, söngkona, flott kona, activista kona og konan á bakvið instagram síðuna fávitar sem hefur vakið mikla athygli, þar sem ógeðfelld, óumbeðin og óviðeigandi skilaboð á samfélagsmiðlum frá nettröllum eru opinberuð og vandamálin eru tekin fyrir. Hún er Sólborg Guðbrandsdóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um upptök fávita, að standa upp gegn fávitum, me too hreyfinguna, samfélagsmiðla, að standa með sjálfum sér, að syngja sig í gegnum lífið, að njóta þess að vera til, að taka pláss og svo margt fleira uppbyggilegt, powerful og skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fyrsta konan til þess að vinna heimsleikana í crossfit tvö ár í röð. Hún er algjör töffari, ultimate power pía, fagkona fram í fingurgóma og instagram vinkona sem ég fæ mikinn innblástur við að fylgjast með. Hún er Annie Mist Þórisdóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um konuna á bakvið legendið sem Annie Mist er, hvernig crossfitið varð að atvinnu og tvöföldum heimsmeistaratitli, keppnisskapið, ólíka sigra, hvernig hún tekst á við vonbrigði og bakslög, að vera í liði með sjálfri sér, það að geta alltaf gengið sáttur burt ef maður gerir sitt besta, innblástur, íslensku sveitina, gleði, hamingju og svo margt inspirational AF. Annie er algjör drottning og það var svo mikill heiður að fá hana til mín í þáttinn. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fagkona fram í fingurgóma og stórvinkona mín. Hún er áhugakona um ástir, höfundur Makamála pistlanna á Vísi, tískulegend og fyrrum eigandi fatamerkisins Eylands. Hún er Ása Ninna og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um lífið og ástina, deit menninguna á Íslandi, Tinder, eat pray love moment Ásu eftir skilnað, sköpunargleði og það hvernig Makamál þróuðust og urðu að raunveruleika. Það og svo margt fleira fyndið, stundum dramatísk en umfram allt ótrúlega skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er ein mögnuð lady. Hún er ein ástsælasta söngkona okkar Íslendinga, magnaður karakter með sturlaða rödd og yfirnáttúrulegan sjarma. Hún er Salka Sól og var viðmælandi minn þessa vikuna í Radio J'adora. Við ræddum um sönginn og listina, lífið og tilveruna, einelti sem Salka varð fyrir á yngri árum, mátt þess að geta verið jákvæður og uppbyggilegur áhrifavaldur, innblástur, fyrirmyndir og svo margt fleira magnað og skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er mögulega skilgreiningin á fagkonu. Hún er læknanemi og stúdentapólítíkus extrordanare, varaborgarfulltrúi, stofnandi og fyrrum stjórnarmeðlimur Hugrúnar geðfræðslufélags háskólans, hjartahlý, eldklár og ótrúlega skemmtileg. Hún er Ragna Sigurðardóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við spjölluðum um uppvaxtarár Rögnu í Bandaríkjunum, pólítík, aðgengilega geðfræðslu, hvernig hugmyndin af geðfræðslufélagi kviknaði og varð að veruleika, hvernig við látum hlutina gerast, hvað það er mikilvægt að trúa á sjálfa sig, innblástur, markmið og svo margt fleira uppbyggilegt og powerful. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er flottasta dragdrottning okkar Íslendinga, super díva og Fjallkonan 2018. Hún er Gógó Starr og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, karakter sköpun og það hvernig alter ego og okkar eigið sjálf þarf ekki að vera aðskilið, innblástur, möntrur, samfélagsmiðla, spennandi verkefni framundan, magnaða mátt dragsins, hvað drag er orðið current og margt fleira. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in! Xoxo, DJ Dóra Júlía
From the publisher's feed