Rafbílahlaðvarpið

Rafbílahlaðvarpið

By RafbílahlaðvarpiðTechnology
Download on the App Store

Rafbílahlaðvarpið episodes

  • #16 Rafmagnsvagnar hjá Strætó bs.

    Jóhannes Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs. settist niður með okkur að þessu sinni og ræddi reynslu af rafmagnsvögnum í þjónustu Strætó, helstu kosti og hvað framtíðin ber í skauti sér. Vissirðu t.d. að það er um 90% ódýrara að keyra rafmagnsvagna og viðhaldskostnaðurinn er 50% lægri?

    40 min
  • #15 Hleðslustöðvar og orkuþörf rafbíla

    Í þessum fyrsta þætti Rafbílahlaðvarpsins eftir langt hlé kom Guðjón Hugberg Björnsson í heimsókn. Við ræddum m.a. orkuþörf rafbíla og þróun og framtíðarsýn í hleðslustöðvum

    0:00 - Hvað eru hleðslustöðvar?

    14:20 - Hleðsla í fjölbýlishúsum

    19:15 - EVS35 ráðstefnan í hleðslumálum

    30:50 - Notkun á hraðhleðslustöðvum á landinu

    38:50 - Plug&Charge tæknin

    49:30 - Rafbílahleðsla í ljósastaurum

    59 min
  • #14 Rafbílavæðing leigubílaflotans

    Í þessum síðasta þætti Rafbílahlaðvarpsins fyrir jólafrí kom Guðmundur Jóhann Gíslason, leigubílstjóri hjá Hreyfli í heimsókn. Við ræddum m.a. notkun rafbíla í leigubílabransanum og kosti þess að nota rafbíl í rekstri.

    0:00 - Upphaf rafbílavæðingar leigubílaflotans

    5:00 - Algengustu spurningar fólks

    10:00 - Aðgengi að hleðslu við Keflavíkurflugvöll

    16:50 - Kostir við að nota rafbíl sem leigubíl

    37 min
  • #13 Endurnýting rafhlaðna

    Sæþór Ásgeirsson, véla- og orkuverkfræðingur hjá IceWind. Við ræddum framhaldslíf rafhlaðna úr rafbílum og nýtingu þeirra við orkuframleiðslu heimila.

    0:00 - Upphaf IceWind og verkefni

    7:50 - Mismunandi endingartími rafhlaðna

    14:00 - Endurnýting rafhlaðna

    20:00 - Breytingar á reglum um raforkuframleiðslu heimila

    28:50 - Vindmyllur á Íslandi, litlar og stórar

    32:30 - Elton the lonely wind turbine https://youtu.be/utEFhBgEAk0

    37:30 - Framtíðarhorfur í rafbílamálum

    47 min
  • #12 Tryggingamál rafbíla

    Hjalti Þór Guðmundsson, forsöðumaður ökutækjatjóna hjá Sjóvá mætti í heimsókn. Við ræddum m.a. tryggingarmál rafbíla og framtíðarhorfur í þeim m.t.t. sjálfkeyrandi ökutækja.

    0:00 - Þróunin á markaðnum og breytingar á skilmálum kaskótrygginga

    12:00 - Undirvagnstryggingar á rafhlöðum

    35:00 - Hleðslustöðvar og heimilistryggingar

    41:50 - Meiri umræður um tryggingar sjálfkeyrandi bíla

    49:40 - Endurnýting rafhlaðna

    56 min
  • #11 Samorka

    Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, kíkti í heimsókn og ræddi m.a. hlutverk Samorku og framtíðarsýn.


    1:30 - Er nóg til af rafmagni fyrir rafbílavæðinguna?

    15:20 - niðurfelling á gjöldum af rafbílum

    21:10 - Framtíðaruppbygging raforkukerfisins

    27:20 - Könnun á hleðsluhegðun fólks

    36 min
  • #10 Norðurorka

    Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, kíkti í heimsókn og ræddi m.a. hleðsluinnviði á dreifisvæði Norðurorku.

    0:00 - Orkunotkun á veitusvæði Norðurorku og áhrif rafbíla á hana

    16:00 - Hleðsluhegðun

    19:30 - Floskuhálsarnir í kerfinu

    23:40 - Önnur púsl í umhverfisvænni framtíð

    25:40 - Þarf að virkja meira?

    29:30 - Smávirkjanir heimila

    37:20 - Biðtími á hraðhleðslum á Akureyri

    38:30 - Tvöfalda rafkerfið á Akureyri

    42 min
  • #9 Húseigendafélagið

    Tinna Andrésdóttir, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, kíkti til okkar og fór yfir hvaða álitamál eru að rata á þeirra borð útaf hleðsluinnviðum. Við fórum einnig yfir breytingu á fjöleignahúsalögunum og hugsanlegar framtíðarhorfur.

    0:00 - Aðkoma Húseigandafélagsins að rafbílamálum

    11:00 - Hófleg mánaðarleg þóknun húsfélags

    17:50 - Þjónusta Húseigendafélagsins og framtíðarhorfur

    23 min
  • #8 Orkustofnun

    Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri mætti til okkar og ræddi m.a. hlutverk Orkustofnunar, framtíðaráætlanir og hvernig þær hafa breyst.


    1:00 - Hlutverk Orkustofnunar

    7:30 - Umræða um orkusjóð og uppbyggingu innviða á landsbyggðinni

    14:30 - Viðhorf stjórnmálaflokkanna: https://rafbilasamband.is/kosningar-2021/

    20:00 - Hvort kemur á undan, hraðhleðslustöðvar á landsbyggðinni eða rafbílavæðing bílaleiguflotans?

    24:20 - Upprunaábyrgðir raforku

    26:00 - Þarf að virkja meira?

    41:00 - Loftslagsmál

    44:00 - Raforkuframleiðsla heimila og framtíðarmál

    53 min
  • #7 Bílgreinasambandið

    Við fengum Jóhannes Jóhannesson hjá Bílgreinasambandinu til að ræða breytingar í bifvélavirkjun, hlutverk Bílgreinasambandsins og framtíðarhorfur í rafbílamálum á Íslandi.

    0:00 - aðkoma Bílgreinasambandsins að rafbílavæðingunni

    8:30 - Eru rafbílar smíðaðir öðruvísi?

    15:30 - Áskoranir sem frameliðendur rafbíla standa frammi fyrir

    23:00 - Niðurfelling gjalda

    31:00 - Rafbílavæðing stærri ökutækja

    42:30 - Lokaorð

    44 min

About Rafbílahlaðvarpið

From the publisher's feed

Hlaðvarp um rafbíla og allt sem tengist þeim á Íslandi. Þáttastjórnendur koma til með að fá til sín gesti til að fræðast um allt sem tengist rafmagnsbílum. Allt frá því að vera algengar spurningar við fyrstu kaup á rafmagnsbíl yfir í íslenska raforkumarkaðinn og dreifikerfi. Markmiðið með þessu hlaðvarp er fyrst og fremst að hafa gaman að fræðast og vonandi fræða aðra. Svo verður þetta rafmagnað ferðalag.