Í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York þann 11. september 2001 fór af stað öryggis- og eftirlitskapphlaup sem ekki sér fyrir endann á. Á flugvöllum er hver einasti farþegi undir smásjá og ógnin leynist víða. Tómas og Snorri fylgjast með hringferðalagi um Bandaríkin til að kanna rökvísi öryggiseftirlits, og kíkja til Kína þar sem tæknivæddu samfélagseiningakerfi er ætlað að sporna við tortryggni og vantrausti milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnanna. Rætt er við Tómas Hrafn Ágústsson, æskuvin, Ásgerði Jóhannsdóttur, textasmið og Joönnu Kraciuk, nema í tölvunarfræði.