Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Lagabreytingartillögur Sósíalista á Akureyri um svæðisfélög

    Við ræðum við  félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí.  

    Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og sósíalista á Akureyri. 

    24 min
  • Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð

    Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni.

    Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt.

    Næsta fimmtudag munum við kynna lagabreytingartillögu okkar. Opin umræða og gagnrýnar spurningar eru velkomnar.

    Verið hjartanlega velkomin á kynningarfund ROÐA um lagabreytingartillögu okkar um Trúnaðarráð / Samvisku!

    Fimmtudaginn 22. maí kl. 17.

    Aðalfundurinn er síðan laugardaginn 24. maí kl. 11 í Bolholti 6, Reykjavík.  

    Lesið allar lagabreytingartillögur sem lagðar hafa verið fyrir aðalfund flokksins á vef flokksins:

    https://sosialistaflokkurinn.is/.../tillogur-um.../

    15 min
  • Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin
    Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna.
    Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?
    1 hr 6 min
  • Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar

    Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. 

    Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! 

    Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.

    49 min
  • Rauður raunveruleiki - Alþjóðlegur baráttufundur gegn heimsvaldastefnu og arðráni
    Félagsmenn Ungra Sósíalista þáðu boð á alþjóðlegan baráttufund gegn heimsvaldastefnunni og arðráni síðastliðna helgi.
    Fundurinn var kallaður til af sósíalíska Verkamannaflokknum í Frakklandi (Workers' Party (PT)) vegna stigmagnandi átaka og heimsvaldastefnu í heiminum.
    Kapítalismi og heimsvaldastefnan haldast í hendur og stigmögnun átaka í heiminum má rekja til óseðjandi hagnaðar- og valdakröfu kapítalista.
    Arnar Már Þóruson, Karl Héðinn Kristjánsson, Markús Candi, Marzuk Ingi, Sigurður Erlends Guðbjargarson & Sigurrós Eggertsdóttir sóttu ráðstefnuna og komu á Samstöðina til að segja frá henni.
    44 min
  • Átök í Sósíalistaflokknum
    Mikið hefur gengið á í umræðunni undanfarna daga. Karl Héðinn skýrir mál sitt og talar við félaga sína í ungliðadeild Sósíalistaflokksins um átökin og framtíð flokksins.
    45 min
  • Rauður raunveruleiki - Byggjum betur!
    Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!".
    Undirskriftarlisti hér: https://island.is/undirskriftalistar/810d7272-e312-46f4-9d80-0aa32ffe3570
    55 min
  • Sjáum samfélagið / Viðar Halldórsson
    Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“.
    Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs.
    Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það sem veitir fólki mestu lífshamingjuna eru ekki veraldlegir hlutir eða velsnægtir heldur frekar þau félagslegu tengsl sem við myndum yfir ævina, við okkar nánustu, nærsamfélagið og samfélagið í heild sinni.
    Það er mikilvægt að staldra annað slagið við og spyrja okkur hvert samfélagið er að þróast. Fiskar í vatni geta átt erfitt með að átta sig á því að þeir séu í vatni. Og hvert vatnið gæti verið að taka þá.
    Þetta og fleira á Samstöðinni klukkan 20:00 í kvöld!
    55 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.