
Sign up to save your podcasts
Or


Magnea og Ármann eru hjón, kennarar og foreldrar tveggja barna. Auk kennaramenntunar eru þau vel menntuð á sviði barna og uppeldis, með háskólapróf í félagsráðgjöf, uppeldis- og menntunarfræði og tómstunda- og félagsmálafræði.
Fyrir 6 árum ákváðu hjónin að losa sig við snjallsímana. Þau fengu sér takkasíma, eiga ekkert sjónvarp og deila einni fartölvu sem tengist netinu bara þegar þarf.
Í þættinum segja þau frá því hvernig þau tóku þessa ákvörðun, hvernig hversdagurinn gengur upp í samfélagi sem verður sífellt stafrænna, og frá því hæglætislífi sem þau fá í staðinn til baka.
Við ræðum líka skjánotkun í skólastarfi. iPad-væðingu, PISA-niðurstöður, muninn á menntatækni og upplýsingatækni og hvað gæti verið skynsamleg lending í tækni í grunnskólanum.
Þátturinn er í boði:
NOVA: https://www.nova.is
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn Velferð: https://stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is
Skoðið Eero hjá Nova hér: https://www.nova.is/einstaklingar/eero
Ársæll Arnarson prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands ræðir við okkur um það hvernig við setjum börnum okkar mörk, hvað nútímabörn eru upptekin og hvernig við förum nú eiginlega að þessu uppeldi í því samfélagi sem við búum í í dag.
Þátturinn er í boði:
NOVA: https://www.nova.is
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn Velferð: https://stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is
Í þættinum fáum við til okkar fulltrúa Ungheilla, þau Indriða Nökkva og Alex Lilju Rún og heyrum þeirra viðhorf á símabanni í skólum og samfélagsmiðlabanni barna og hvernig þeim finnst að ætti að framkvæma það.
Þátturinn er í boði:
NOVA: https://www.nova.is
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn Velferð: https://stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is
Í þessum þætti kemur til okkar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og sérfræðingur í stafrænum réttindum. Við förum vítt og breytt um ógnir hins stafræna heims og hvaða bjargráð við höfum.
Skólastjórnendurnir Ómar Örn & Sigríður Nanna koma í spjall til okkar. Þau ræða við okkur um tækninotkun í þeirra skóla og þá ákvörðun um að bakka dálítið með hana og fara aftur í grunnatriðin í grunnfögunum.
Þátturinn er í boði:
Balance Phone: https://balåancephone.is/
Stafræn Velferð: https://stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is
Björn Hjálmarsson, barnagæðalækni, kom til að ræða um þróun uppeldis í hinum vestræna heimi. Við förum yfir þrjár stórar byltingar:
1. Uppbrot kynslóðafjölskyldunnar, 2. kvenfrelsisbaráttuna og 3. stafrænu byltinguna — og hvernig þær hafa áhrif á líf og geðheilsu barna í dag.
Björn deilir með okkur sinni sýn á skjáfíkn, neteinelti, einmanaleika og hvað við sem foreldrar getum gert til að ramma inn líf barnanna á heilbrigðan hátt.
Þátturinn er í boði:
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn velferð: https://www.stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is/
Í þessum þætti ræðum við við Trausta Magnússon, 17 ára nemanda við Verslunarskóla Íslands. Hann varpar ljósi á það hvernig er að vera nemandi í "ipadda-væddum" grunnskóla og hefur frá ýmsu að segja.
Theódór Francis frá Lausninni kemur til okkar og ræðir lífið, ástina, stjúptengsl og hvernig við byggjum upp skothelt samband.
Bjarni Fritzson er rithöfundur, þjálfari og námskeiðahaldari sem brennur fyrir velferð barna og ungmenna. Hann er höfundur fjölda bóka eins og Orra Óstöðvandi, Öflugir strákar og Tölvuheimurinn.
Hann er núna í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík.
Í þessum þætti ræðum við um hvernig við getum byggt upp sterka stráka, skaðleg áhrif samfélagsmiðla, símafrí í skólum og hvers vegna Bjarni ákvað að fara í pólitík.
Þátturinn er í boði:
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn velferð: https://www.stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is/
Í þessum þætti ræðum við við Bergþóru Þórhallsdóttur, verkefnastjóra hjá menntasviði Kópavogsbæjar.
Við förum í gegnum innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum, hvernig stafræn borgarvitund er kennd, gervigreind í námi og samvinnu heimilis og skóla.
Þátturinn er í boði:
Balance Phone - https://balancephone.is/
Stafræn velferð - https://www.stafraenvelferd.is/
JoyBox.is - https://joybox.is/
From the publisher's feed