Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

By Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal ÓlafsdóttirNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Reykjavíkurfréttir episodes

  • Reykjavíkurfréttir 8. okt - Talað og tekið á málum
    Þriðjudagur 8. október
    Talað og tekið á málum
    Borgarstjórnarhópur Sósíalista fer yfir það helsta sem hefur átt sér stað innan borgarinnar á liðnum dögum; tillögu um mælingar á þáttum er tengjast gjaldfrjálsum máltíðum svo hægt sé að fylgjast með þróun þeirra þátta, svo sem næringargildi, gæði og magn. Við munum einnig fjalla um tillögu Sósíalista um samvinnuvettvang við stéttarfélögin sem fékk brautargengi innan borgarinnar sem og breytingar á gjaldskrá í akstursþjónustu fatlaðra, þar sem loks á að miða gjaldið við það sem þekkist hjá Strætó bs
    27 min
  • Reykjavíkurfréttir 1. okt - Samgönguleysi í Gufunesi
    Þriðjudagur 1. október
    Reykjavíkurfréttir: Samgönguleysi í Gufunesi
    Í þætti dagsins ræðum við um almenningssamgöngur frá sjónarhóli íbúa í Gufunesi en gestir okkar, Móberg Ordal og Rakel Glytta Brandt heilluðust af vistvænum hugmyndum um sjálfbært þorp og samvinnu íbúa en enduðu samgöngulaus og félagslega einangruð í Jöfursbás.
    49 min
  • Reykjavíkurfréttir - Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
    Þriðjudagur 24. september
    Reykjavíkurfréttir: Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
    Ásta Dís og Sanna ræða ýmislegt úr borgarmálum síðustu viku. Samþykkt var að skoða nánar tillögu Sósíalistaflokks í borgarstjórn um næringargildi gjaldfrjálsra skólamáltíða.
    Ásta Dís segir frá reykköfun, óleyfisbúsetu og fleiru í heimsókn sinni til slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en aðalfundur þeirra var haldinn á föstudaginn var í Hafnarfirði og þar kom ýmislegt fróðlegt í ljós. Kjalarnes bar á góma en. einnig ræðum við stuttlega um NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð).
    30 min
  • Reykjavíkurfréttir - Ójöfnuður í skólakerfinu
    Þriðjudagur 17. september
    Ójöfnuður í skólakerfinu
    Í þessum þætti ræðum við um ójöfnuð og birtingarmyndir þess í skólum. Þórunn Einarsdóttir kennari í framhaldsskóla kemur til okkar og ræðir við okkur um skólastarfið, falinn kostnað við skólaviðburði og misjafnar aðstæður nemenda. Þá veltum við því einnig upp hvort að framhaldskólar ættu að vera gjaldfrjálsir.
    42 min
  • Reykjavíkurfréttir 10. sept - Hvað er málið með þessa borgarstjórn?
    Þriðjurdagur 10. september
    Reykjavíkurfréttir - Hvað er málið með þessa borgarstjórn?
    Í þessum þætti kynnum við Ástu Þórdísi Skjalddal Guðjónsdóttur til leiks og starfs í borgarstjórnarflokki Sósíalista. Við ræðum hvernig reynsla hennar úr grasrót fólks í fátækt nýtist inn í pólitíkina og förum yfir starf okkar sem kjörinna fulltrúa í borginni, hin ýmsu ráð og aðkomu að þeim.
    38 min
  • Reykjavíkurfréttir 3. sept - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir
    Þriðjudagur 3. september
    Reykjavíkurfréttir - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir
    Í þessum fyrsta haustþætti Reykjavíkurfrétta eru gestir okkar þeir Ludvig Guðmundsson læknir og Stefán Jón Hafstein fyrrverandi formaður menntaráðs Reykjavíkur en báðir eru þeir félagar í Aldin eins og fram kemur í þættinum.
    Þátturinn fjallar um gjaldfrjálsar skólamáltíðir sem eru jú hluti af samþykktum ríkis og sveitarfélaga við 20 stéttarfélög sem hluta af kjarabótum og er komið til framkvæmda á þessu skólaári en umræðan að þessu sinni er út frá umhverfislegu sjónarmiði.
    Umsjónarmenn þáttarins eru þær Sanna Magdalena Mörtudóttir og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
    28 min
  • Andrými
    Reykjavíkurfréttir, þriðjudagur 14. maí
    Andrými
    Við fáum innsýn inn í starfsemi Andrýmis sem er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Með sjálfstæðri starfsemi sinni og skipulagningu vill Andrými greiða leið fyrir frekari baráttu í anda valdeflingar, frelsis, jafnréttis og gagnkvæmrar hjálpar. Jakob Beat Altmann, Elías Snær Einarsson og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir segja okkur frá Andrými.
    40 min
  • Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa
    Reykjavíkurfréttir, 30. apríl
    Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa.
    Sanna Magdalena Mörtudóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað í borgarmálum upp á síðkastið. Við fjöllum um fyrirhugaða 16 hæða hóteluppbyggingu sem á að reisa á Skúlagötu, umræður um byggingarfélag Reykjavíkurborgar, laun á leikskólum og fræðslumyndband velferðarsviðs um einhverfu.
    36 min
  • Metnaðarleysi í Mjódd
    Reykjavíkurfréttir, 23. apríl
    Metnaðarleysi í Mjódd
    Sanna Magdalena Mörtudóttur ræðir við Söru Stef Hildar um þjónustuleysið sem birtist á skiptistöðinni í Mjódd. Um er að ræða stærstu skiptistöðina í almenningssamgangnakerfi borgarinnar. Mikill þörf er á úrbótum til þess að gera svæðið aðlaðandi og laga að þörfum strætónotenda.
    50 min
  • Eftirlit, sorp og mannréttindabrot
    Reykjavíkurfréttir, 27. febrúar, 2024
    Eftirlit, sorp og mannréttindabrot
    Sanna, Andrea og Halldóra skoða nánar virkni eftirlitsmyndavéla en nýverið kom út skýrsla sem sýndi fram á að bæta þurfi verulega framkvæmd rafrænnar vöktunar og setja þarf fram leiðbeiningar um rafræna vöktun, t.a.m. varðandi aðgang að efni úr slíkri vöktun. Þá skoðum við hvernig söfnun á lífrænum úrgangi er háttað í öðrum sveitarfélögum á Norðurlöndunum og hvernig pokum undir lífrænan úrgang er komið til íbúa. Við ræðum einnig langa biðlista eftir húsnæði en í desember 2023 voru 207 manneskjur þar af eru 162 að bíða eftir fyrstu úthlutun í húsnæði sem hentar þörfum fatlaðra í borginni og 45 á bið eftir milliflutningi úr einu húsnæði í annað
    Skýrsluna um rafræna vöktun má nálgast hér https://www.innriendurskodun.is/utgefid-efni/eftirlitsmyndavelar-a-vegum-reykjavikurborgar---frumkvaedissko%C3%B0un.
    42 min

About Reykjavíkurfréttir

From the publisher's feed

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.