Share RIFFKASTIÐ
Share to email
Share to Facebook
Share to X
By RIFF | Reykjavík International Film Festival
The podcast currently has 11 episodes available.
Hver er munurinn á költ og klassík? Er ekki allt költ sjálfkrafa klassík? Páll Óskar skilgreinir þennan óskilgreindasta undirflokk kvikmyndanna?
Leikstjórn snýst ekki endilega um stjórn. Hún snýst líka um að sleppa stjórninni. Ása Helga segir sögu sína bakvið vélina.
Hvað hefur þú séð margar íslenskar kvikmyndir? Andrea Björk Andrésdóttir hefur séð þær ALLAR. Og lifði það af.
Animeitarar eru hugsanlega duglegasta fólk í heimi. Það getur animation undrabarnið Gísla vottað til um.
Hvað er svona gaman við að vera hræddur? Lovísa Lára, stofnandi einu hryllingsmyndahátíðar Íslands, útskýrir mikilvægi blóðsúthellinga á hvíta tjaldinu.
Hvað er kvikmyndaklipping? Það er allavega miklu meira en bara að skera og líma. Elísabet Ronaldsdóttir ræðir um feril sinn hérlendis og erlendis.
Ninna Pálmadóttir er leikstjóri og kvikmyndagerðarkona, en mynd hennar, Blaðberinn, var valin besta stuttmyndin á RIFF 2019. Ninna sýnir nýja mynd á RIFF í ár, en það er stuttmyndin Allir hundar deyja. Hún kom í spjall í Popp og kók og sagði okkur meðal annars frá sínum uppáhalds myndum, og fyrstu bíóminningum.
RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, fer fram í 17. sinn dagana 24. september - 4. október 2020.
Þáttastjórnendur eru Ingileif Friðriksdóttir og María Ólafsdóttir.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson frumsýnir nýjustu heimildarmynd sína, Sirkusstjórann, á RIFF í ár. Helgi kíkti í spjall í Popp og kók!
RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, fer fram í 17. sinn dagana 24. september - 4. október 2020.
Þáttastjórnendur eru Ingileif Friðriksdóttir og María Ólafsdóttir.
Hryllingurinn er ákveðin þerapía að mati Flosa Þorgeirssonar, sagnfræðings og hryllingsmyndanörds með meiru. Popp og kók ræðir við Flosa um hans uppáhalds myndir, og fer á persónulegar nótur um það hvers vegna kvikmyndir eru mikilvægar.
RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, fer fram dagana 24. september - 4. október 2020.
Þáttastjórnendur eru Ingileif Friðriksdóttir og María Ólafsdóttir.
Andri Snær Magnason og Anní Ólafsdóttir eru leikstjórar opnunarmyndar RIFF, Þriðja pólsins. María spjallar við þau Andra og Anní um kvikmyndina og ferðalagið sem þau fylgdu Högna Egilssyni og Önnu Töru Edwards í um framandi slóðir í Nepal.