Fyrir forvitna

Ritsmiðja í Borgarbókasafninu


Listen Later

Tvisvar í mánuði hittist hópur kvenna á besta aldri í Borgarbókasafninu í Árbæ, þær skrifa, lesa upp textana sína og gefa hverri annarri gagnrýni og ábendingar. Skrifstofan er opin og ókeypis ritsmiðja á vegum Borgarbókasafnsins í Árbæ, en sams konar smiðja er einnig starfrækt í Kringlunni. Þátttakendur nýta smiðjuna ýmist til að skrásetja endurminningar sínar, vinna úr sárri lífsreynslu í ljóðum, eða virkja ímyndunaraflið og skrifa skáldsögur. Skrifstofan var heimsótt í útvarpsþættinum Lestin á Rás 1.
Rætt er við umsjónarmenn ritsmiðjunnar, Jónínu Óskarsdóttur og Kristínu Arngrímsdóttur, en einnig lesa þátttakendur ritsmiðjunnar úr verkum sínum. Þetta eru þær Guðríður Pálmadóttir, Valgerður Tómasdóttir, Erna Reynisdóttir, Hlíf Anna Dagfinnsdóttir, Þórgunnur Þórarinsdóttir, Birna Bergsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fyrir forvitnaBy RÚV