Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Er ţetta nú allt og sumt?
    Rokkland býđur upp á "best of 2015" í Rokklandi dagsins.
    Rokkland varđ 20 ára á árinu og ţátturinn í dag er númer 987 í röđinni - bráđum 1000.
    Í ţćtti dagsins rifjum viđ upp eitt og annađ en Rokkland brallađi á árinu. Viđ förum ađ rótum rytmans til Nashville og Memphis međ Bó Hall ofl.
    Viđ förum á ATP, Iceland Airwaves, Reeperbahn Festival, Höfundur ókunnur ofl.
    Heyrum í Belle & Sebastian, Barry Hogan, Tom Jones, Adele, Eivör, Agent Fresco, Gísla Pálma, Röggu Gísla, Gunna Ţórđar og Hljómum 1963, Alice Cooper, Mercury Rev, Das Kapital, Of Monsters And Men, Elvis, Johnny Cash, Jack White ofl.
    1 hr 49 min
  • Jólin á Mars og þegar María mín fór
    Allar götur síðan 1997 hefur Rokkland boðið upp á sérstakan jólaþátt og hann er einmitt í dag þetta árið.
    Í fyrsta þættinum fyrir öllum þessum árm var þetta eki mikið mál, það var eki svo erfitt að safna saman bunka af skemmtilegum og svolítð „öðruvísi“ jólalögum sem ekki högfðu verið spiluð mikið í útvarpið þann desemberinn, en með hverju árinu sem líður verður þetta meira og meira mál - fyrst og fremst vegna þess að starfsfólk Rásar 2 er meðvitaðra um jólamúsíkina sem er til og það sem heyrist í útvarpinu í dag er miklu fjölbreyttara en það var áður. Það er búið að vera mikið af jólamúsík á Rásinni um jólin sem þýðir að þetta er heilmikil áskorun fyrir mig að bjóða upp á eitthvað JÓLA ? þriðja í jólum sem fólk nennir hugsanlega að hlusta á.
    En ég ætla í Jóla-Rokklandi í dag að bjóða upp á Blind Boys of Alabama, The Flaming Lips ? Wayne Coyne verður líka á línunni og segir frá jólalaginu þeirra; A change at christmas, say it isn´t so. Við heyrum Gene Autry syngja um mömmu sína og jólasveinin, Eddie Cochran og The Holly Twins syngja um Elvis og jólin. Við heyrum lög af nýrri jólaplötu Kylie Minogue, Mary Gauthier um jólin á götunni, John Prine syngur um jólin þegar kærastan yfirgaf hann, Teinar um jólin þegar María mín fór, Willie Nelson syngur um jólin í ræsinu, og Johnny Cash um jesúbarnið, Neil Young og Pegi fyrrum eiginkona hans um jólabjöllurnar í Frakklandi, Chrissie Hynde syngur gamlan jólasálm og Tim Wheeler úr írsku hljómsveitinni Ash syngur um uppvakningajól og jólin á brimbretti.
    John Travolta og Olivina Newton John taka lagið líka, Lou Rawls og Ramones.
    1 hr 49 min
  • Jólin á Mars og ţegar María mín fór
    Allar götur síđan 1997 hefur Rokkland bođiđ upp á sérstakan jólaţátt og hann er einmitt í dag ţetta áriđ.
    Í fyrsta ţćttinum fyrir öllum ţessum árm var ţetta eki mikiđ mál, ţađ var eki svo erfitt ađ safna saman bunka af skemmtilegum og svolítđ „öđruvísi“ jólalögum sem ekki högfđu veriđ spiluđ mikiđ í útvarpiđ ţann desemberinn, en međ hverju árinu sem líđur verđur ţetta meira og meira mál - fyrst og fremst vegna ţess ađ starfsfólk Rásar 2 er međvitađra um jólamúsíkina sem er til og ţađ sem heyrist í útvarpinu í dag er miklu fjölbreyttara en ţađ var áđur. Ţađ er búiđ ađ vera mikiđ af jólamúsík á Rásinni um jólin sem ţýđir ađ ţetta er heilmikil áskorun fyrir mig ađ bjóđa upp á eitthvađ JÓLA ? ţriđja í jólum sem fólk nennir hugsanlega ađ hlusta á.
    En ég ćtla í Jóla-Rokklandi í dag ađ bjóđa upp á Blind Boys of Alabama, The Flaming Lips ? Wayne Coyne verđur líka á línunni og segir frá jólalaginu ţeirra; A change at christmas, say it isn´t so. Viđ heyrum Gene Autry syngja um mömmu sína og jólasveinin, Eddie Cochran og The Holly Twins syngja um Elvis og jólin. Viđ heyrum lög af nýrri jólaplötu Kylie Minogue, Mary Gauthier um jólin á götunni, John Prine syngur um jólin ţegar kćrastan yfirgaf hann, Teinar um jólin ţegar María mín fór, Willie Nelson syngur um jólin í rćsinu, og Johnny Cash um jesúbarniđ, Neil Young og Pegi fyrrum eiginkona hans um jólabjöllurnar í Frakklandi, Chrissie Hynde syngur gamlan jólasálm og Tim Wheeler úr írsku hljómsveitinni Ash syngur um uppvakningajól og jólin á brimbretti.
    John Travolta og Olivina Newton John taka lagiđ líka, Lou Rawls og Ramones.
    1 hr 48 min
  • Hjálpum þeim - Jojo og Gummi P.
    Í Rokklandi dagsins skoðum við tenginguna milli Hjálpum þeim (desember 1985), Do the know it´s christmas (desember 1984) og We are the world (mars 1985).
    Í seinni hluta þáttarins er gítarleikarinn ? gítarhetjan og tónlistarmaðurinn Guðmundur Pétursson gestur Rokklands, en hann spilaði t.d. 16 Baggalútstónleika núna í desember, hann túraði um heiminn á árinu með hinum norska Erlend Oye og hann var líka að gefa út sína þriðju sólóplötu. Hún heitir Sensus og hefur að geyma instrumental músík, sem er alls ekki bara gítarmúsík. Heyrum í Gumma Pé sem sló í gegn á einu kvöldi á Músíktilraunum árið 1987, aðeins 14 ára gamall.
    Í Fyrri hlutanum kemur í heimsókn annar gítar-maður ? allt öðruvísi en Gummi Pé, nefnilega götuspilarinn JoJo sem fólk kannast við ef það er á rölti í Austurstræti á kvöldin og sérstaklega um helgar. Þar situr hann oftar en ekki með gítarinn, í úlpunni, með grifflur og húfu og trefil og syngur fyrir fólkið ? veitir samfélagsþjónustu eins og hann segir sjálfur. Jojo spilaði einu sinni með Bruce Springsteen, heyrum af því og lífinu í götunni í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min
  • Hjálpum ţeim - Jojo og Gummi P.
    Í Rokklandi dagsins skođum viđ tenginguna milli Hjálpum ţeim (desember 1985), Do the know it´s christmas (desember 1984) og We are the world (mars 1985).
    Í seinni hluta ţáttarins er gítarleikarinn ? gítarhetjan og tónlistarmađurinn Guđmundur Pétursson gestur Rokklands, en hann spilađi t.d. 16 Baggalútstónleika núna í desember, hann túrađi um heiminn á árinu međ hinum norska Erlend Oye og hann var líka ađ gefa út sína ţriđju sólóplötu. Hún heitir Sensus og hefur ađ geyma instrumental músík, sem er alls ekki bara gítarmúsík. Heyrum í Gumma Pé sem sló í gegn á einu kvöldi á Músíktilraunum áriđ 1987, ađeins 14 ára gamall.
    Í Fyrri hlutanum kemur í heimsókn annar gítar-mađur ? allt öđruvísi en Gummi Pé, nefnilega götuspilarinn JoJo sem fólk kannast viđ ef ţađ er á rölti í Austurstrćti á kvöldin og sérstaklega um helgar. Ţar situr hann oftar en ekki međ gítarinn, í úlpunni, međ grifflur og húfu og trefil og syngur fyrir fólkiđ ? veitir samfélagsţjónustu eins og hann segir sjálfur. Jojo spilađi einu sinni međ Bruce Springsteen, heyrum af ţví og lífinu í götunni í Rokklandi í dag.
    1 hr 46 min
  • Helgi Bjösss... sko...
    Helgi Björns er gestur Rokklands í dag. Hann sendi nýlega frá sér plötuna Veröldin er ný en hún er fyrsta platan hans með frumsömdu efni í heil 18 ár.
    Helgi segi okkur hvers vegna svona langur tími hafi liðið milli platna, en þessa nýju plötu gerði hann með ungum mönnum sem hann hafði ekki unnið svona náið með áður. Guðmundur Óskar Guðmundsson (Hjaltalín) samdi flest laganna með Helga og megmið af textunum samdi Helgi með Atla Bollasyni sem var á sínum tíma hljómborðsleikari í Sprengjuhöllinni.
    Helgi vakti mikla athygli þegar hann byrjaði að syngja með hljómsveitinni Grafík fyrir 30 árum. Hann sló eiginlega í gegn á einni nóttu þessi svipmikli gaur frá Ísafirði.
    Hann hætti svo í Grafík eftir að hafa gert tvær plötur með sveitinni og stofnaði nýja hljómsveit sem var gefið nafnið Síðan skein Sól sem breyttist svo í SSSÓL.
    Helgi gaf svo út sólóplötu 1997 og síðan hefur hann verið að leika og syngja, er búinn að gefa út slatta af plötum þar sem hann hefur verið að syngja lög eftir aðra yfirleitt. Plata með lögum Magnúsar Eiríkssonar, plata með lögunum sem Haukur Morthens söng og svo reiðmannaplöturnar.
    Nýja platan hefur vakið taslverða athygli og Andrea Jóns og Arnar Eggert gáfu henni t.d.fína einkun.
    1 hr 50 min
  • Helgi Bjösss... sko...
    Helgi Björns er gestur Rokklands í dag. Hann sendi nýlega frá sér plötuna Veröldin er ný en hún er fyrsta platan hans með frumsömdu efni í heil 18 ár.
    Helgi segi okkur hvers vegna svona langur tími hafi liðið milli platna, en þessa nýju plötu gerði hann með ungum mönnum sem hann hafði ekki unnið svona náið með áður. Guðmundur Óskar Guðmundsson (Hjaltalín) samdi flest laganna með Helga og megmið af textunum samdi Helgi með Atla Bollasyni sem var á sínum tíma hljómborðsleikari í Sprengjuhöllinni.
    Helgi vakti mikla athygli þegar hann byrjaði að syngja með hljómsveitinni Grafík fyrir 30 árum. Hann sló eiginlega í gegn á einni nóttu þessi svipmikli gaur frá Ísafirði.
    Hann hætti svo í Grafík eftir að hafa gert tvær plötur með sveitinni og stofnaði nýja hljómsveit sem var gefið nafnið Síðan skein Sól sem breyttist svo í SSSÓL.
    Helgi gaf svo út sólóplötu 1997 og síðan hefur hann verið að leika og syngja, er búinn að gefa út slatta af plötum þar sem hann hefur verið að syngja lög eftir aðra yfirleitt. Plata með lögum Magnúsar Eiríkssonar, plata með lögunum sem Haukur Morthens söng og svo reiðmannaplöturnar.
    Nýja platan hefur vakið taslverða athygli og Andrea Jóns og Arnar Eggert gáfu henni t.d.fína einkun.
    1 hr 50 min
  • Bubbi talar og talar...
    Í Rokklandi á sunnudaginn. Hann talar fyrst og fremst um nýju plötuna - 18. konur sem fjallar meira og minna öll um konur. Það eru líka konur sem spila með honum á plötunni - eingöngu konur. Þær kalla sig Spaðadrottningarnar og eru Ingibjörg Elsa Turchi sem spilar á bassa, Brynhildur Oddsdóttir á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur og Margrét Arnardóttir á harmonikku.
    Við Bubbi ræðum í þættinum um konur, plötuna, Spaðadrottningarnar, trúmál, höfundarétt, netið, Spotify, Úlfur Úlfur, nauðganir, Múhameð og Guð, um rafmagnsgítara, réttarkerfið, hefndarklám, Drekkyngarhyl og drauma, um Joy Divison, ríka fólkið, ljóðabækur, Múslima og flóttafólk, útgefendur og ýmislegt fleira.
    Bubbi Morthens kom inn íslenskt tónlistarlíf eins og stormsveipur árið 1980 ? þetta er gömul klisja að orða hlutina svona en hún er svo innilega sönn í tilfelli Bubba. Síðan þá hefur hann ekki látið okkur í friði ? hann er búinn að gera fleiri lög og plötur en allir aðrir íslendingar. 8 konur er 28. sólóplatan hans og þá eru plöturnar með hljómsveitunum hans ekki teknar með ? Utangarðsmanna-plöturnar, Egó-plöturnar, Das Kapital, GCD-plöturnar og ekki tónleikaplöturnar eða safnplöturnar.
    Bubbi hefur skrifað bækur ? barnabækur og veiðibækur, og núna síðast ljóðabók sem hefur slegið í gegn. Hann bloggar, hann stýrir útvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum - hann er yfir og allt um kring og allt of fyrirferðarmikill finnst mörgum - en sumir fá aldrei nóg af þessum Bubba.
    1 hr 49 min
  • Ljósanna hátíđ U2 í Dublin
    Rokkland fór á tónleika međ U2 á heimavelli í Dublin á ţriđjudaginn síđasta og ég ćtla ađ reyna ađ kom stemmningunni til skila í ţćtti dagsins auk ţess sem viđ heyurm í nokkrum heimamönnum sem ég spjallađi viđ eftir tónleikana.
    Ég ćtla ađ spila soldiđ af nýrri músík međ nýju fólki eins og Sundara Karma, Coasts, Bohicas og Villagers. Ég ćtla líka ađ bjóđa uppá nýtt frá Yo La Tengo og Jeff Buckley og svo nýtt en gamalt međ Bruce Springsteen af vćntanlegu River-safni. Viđ heyrum splunkunlýtt jólalag međ Alison Krauss og Robert Plant og líka nýtt jólalag međ The Darkness um jólasveininn.
    Svo heyrum viđ ađeins í Pétri Hallgrímssyni gítarleikara John Grant sem einu sinni var í hljómsveitinni E-X frá Hafnarfirđi en hefur líka túrađ međ Emiliönu Torrini og Kylie Minogue. Ég spjallađi viđ P'etur eftir tónleika Johns og sinfóníuhljómsveitar Íslands á Airwaves í Eldborg í Hörpu á dögunum.
    Nokkur lög af nýrri jólaplötu Sharon Jones & The Dap Kings munu heyrast, ţessi 59 ára gamla söngkona frá Brooklyn sem starfađi einu sinni sem fangavörđur í Rikers Island var ađ senda frá sér skemmtilega jólaplötu sem heitir It´s a Holiday Soul Party.
    En mesta púđriđ í ţćttinum í dag fer í U2.
    1 hr 44 min
  • E.L.O.R.G.Í.A.
    Jeff Lynne úr E.L.O er maður vikunnar í Rokklandi og þátturinn er næstum allur helgaður honum.
    Ein stærsta tónlistarfrétt vikunnar og kannski ársins er að það var að koma út ný plata með E.L.O. ? Electric Light Orchestra. Platan kemur út undir nafninu Jeff Lynne´s E.L.O. en Jeff Lynne hefur frá upphafi, frá árinu 1971 verið forsprkakki E.L.O. Hann er E.L.O. og E.L.O. er hann. Hann semur öll lögin, hann útsetur, spilar allt, syngur allt og allt sem E.L.O. stendur fyrir hefur orðið til í höfðinu á honum.
    E.L.O. er ein af stærstu og þekktustu og vinsælustu hljómsveitum popp og rokksögunnar, hefur selt meira en 50 milljónir platna, topp-40 lögin í Bretlandi eru 25 og nýja platan er 14. stúdíó-platan.
    Síðasta E.L.O. plata kom út 2001, heitir Zoom og vakti enga sérstaka athygli, náði 94. sæti Bandaríska vinsældalistans og það þrátt fyrir að þar voru tveir Bítlar gestir, George og Ringo.
    Síðasta plata E.L.O. þar á undan kom út 1986, 15 árum fyrr, og nú eru 14 ár frá 2001, tvær plötur á 30 árum og það er nú ekkert sérlega mikið.
    Jeff Lynne hefur aldrri verið mikið fyrir það að spila á tónleikum og það eru ýmsar ástæður fyrir því sem farið er í í þættinum. En nú er þetta allt að breytast, það er mikill spenningur fyrir plötunni sem heitir Alone in the Universe. Hún stökk beinustu leið í 4. sæti breska vinsældalistans og í 1. sæti vinyl-sölu listans. Og svo ætlar E.L.O að fara að túra líka en það hefur sveitin ekki gert líklega síðan 1986.
    Jeff segir sjálfur frá samstarfinu við Bítlana í þættinum, talar um vini sína Bob Dylan, Royu Orbison. Tom Petty, George Harrison, Roy Wood ofl. Talar um vinnuna og E.L.O. og allt mögulegt auk þess sem ég skauta yfir ferilinn - líka það sem Jeff hefur gert með öðrum tónlistarmönnum en hann er einn eftirsóttasti upptökustjóri heims og hefur gert plötur með mörgum af þeim bestu. Bítlarnir eru líklega toppurinn en það var einmitt Jeff sem var fenginn til að gera Bítlalögin Free as a bird og Real love uppúr gömlum kassettu upptökum sem Lennon gerði, þegar Beatles Anthology kom út 1995.
    David Bowie sendi svo frá sér nýtt lag í vikunni og það setti músíkpressuna næstum á hliðina. Lagið er fyrsta smáskífa væntanlegrar plötu sem kemur út á afmælisdaginn hans næsta (8. janúar) en þá verður Bowie 69 ára gamall. Og hann er ennþá með ? og miklu meira en það. Hann fékk hjartaáfall í miðri tónleikaferð árið 2004 og hefur síðan þá haft frekar hægt um sig. Hefur þó komið fram sem gestur á nokkrum plötum og stigið á svið einstaka sinnum sem gestur. Hann sendi síðast frá sér plötu fyrir tveimur árum
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners