Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Arnarhóll, Kaleo og Patti Smith
    Rokkland er ţrískipt ađ ţessu sinni.
    Í fyrsta lagi heyrum viđ viđtal viđ Kaleo sem ég tók um leiđ og strákarnir stigu af sviđi í Laugardalshöll á fimmtudaginn, en ţeir flugu til landsins frá Ameríku í ţeim tilgangi ađ hita upp fyrir Kings Of Leon. Ţeir tala m.a. um nýja myndbandiđ sitt, ferđalög, nábýli, hita og prump.
    Í öđru lagi rifjum viđ upp brot frá Tónaflóđi Rásar 2 á Menningarnótt í fyrra, en ţá spiluđu Skálmöld, Mammút, Mono Town og NýDönsk. Á Tónaflóđi 2015 spila svo Gísli Pálmi, Dimma, Amabadama og Stuđmenn.
    Í ţriđja og síđasta hluta Rokklands ađ ţessu sinni er Patti Smith í ađalhlutverki en hún er međ tónleika í Eldborg á mánudaginn ţar sem hún ćtlar ađ flytja fyrstu plötuna sína, Horses, í heild sinni í bland viđ ađra músík. Horses sem kom út áriđ 1975 er á fjölmörgum listum yfir bestu plötur rokksögunnar.
    Međ patti eru tveir upprunalegir međlimir hljómsveitarinnar Patti Smith Group, ţeir Lenny Kaye og Jay Dee Daugherty. Fjórđi mađurinn er svo bassaleikarinn og hljómborđsleikarinn Tony Shanahan, sem hefur veriđ í hljómsveit Pattis í 20 ár.
    1 hr 48 min
  • Kings Of Leon spila golf og veiđa
    Nathan Followill trommuleikari Kings of Leon sem er elstur ţeirra brćđra sem skipa Kings Of Leon verđur á línunni í Rokklandi á sunnudaginn.
    Bandaríska rokksveitin Kings of Leon sem hefur veriđ eins stćrsta og umsvifamesta rokksveit heims undanfarin ár er međ tónleika í Laugardalshöll nćsta fimmtudag (13. ágúst)
    Kings Of Leon hefur árum saman spilađ á stóru sviđunum á öllum helstu tónlistarhátíđum heims og ósjaldan veriđ eitt af ađalnúmerunum, Headline, eins og ţađ heitir á útlenskunni.
    Sveitin hefur unniđ til fjölda verđlauna, Brit, Juno og Grammy, plöturnar sem eru sex talsins hafa selst vel og hljómsveitin hefur veriđ spiluđ mikiđ í útvarpi um allan heim.
    Nýjasta platan heitir Mechanical Bull og kom út í september 2013.
    Nathan segir í ţćttinum t.d. frá upphafi ćvintýris Kings of Leon, ţegar ţeir fóru hann og Caleb bróđir hans til Memphis í leit ađ frćgđ og frama ţegar ţeir voru í kingum tvítugt. Caleb sem kunni ekkert á hljóđfćri var stađráđinn í ţví ađ verđa tónlistarmađur og ţađ gekk upp. En ekki bara fyrir hann, heldur vildi hann ekki hafa neina međ sér ađra en brćđur sína tvo, og frćnda. Og Kings of Leon skipa ţeir Caleb, Nathan og Jared Followill sem eru brćđur, og frćndi ţeirra, Matthew Followill.
    Allt um Kings of Leon, golfiđ og fluguveiđna í Rokklandi.
    1 hr 51 min
  • Sumt sjóđheitt og annađ gleymt
    Rokkland býđur upp á íslenska tóna úr ýmsum áttum í dag í tilefni af ţví ađ Ísland er bezta land í heim (ađ sumra mati, sumstađar á landinu).
    Í ţćttinum verđa kynnt ný lög međ hljómsveitum og listamönnum eins og Árnason & Co ásamt Bubba Morthens, Sverri Bergmann, Glowie, Bang Gang, Mugison, Júlíusi Guđmundssyni, LITH og Bootlegs svo eitthađ sé nefnt.
    Viđ heyrum svo nýjar órafmagnađar upptökur međ Of Monsters And Men sem ekki hafa heyrst áđur í útvarpi á Íslandi og koma beint frá hljómsveitinni sjálfri. Plata OMAM, Beneath the skin náđi í vikunni toppsćti metsölista I-Tunes sem er glćsilegur árangur. Hann er ekki síđri en landsliđsins í fótbolta á föstudaginn. Áfram Ísland!
    Ég ćtla ađ rifja upp útgáfutónleika Sigur Rósar fyrir 16 árum í Íslensku Óperunni, ţegar platan Ágćtis byrjun kom út, og spila brot af tónleikunum. Rás 2 sendi tónleikana út beint á sínum tíma og tók ţá líka upp og geymdi upptökurnar. Núna er Birgir Jón Birgisson upptökustjóri í Sundlaugunni í Mosfellsbć búinn ađ endurhljóđblanda konsertinn (sem hann sendi út beint sjálfur á sínum tíma ásamt Hirti Svararssyni) og hann er ađ koma út á plötu síđar á árinu í lúxus-útgáfu af Ágćtis byrjun og á vinyl.
    Í ţćttinum er líka tekiđ ofan fyrir Dave Grohl forsprakka Foo Fighters sem fótbrotnađi á tónleikum í Svíţjóđ á föstudaginn en klárađi tónleikana ţrátt fyrir ţađ. Viđ rifjum upp komu Foo Fighters til Íslands í ágúst 2003 og heyrum brot frá tónleikunum sem Rás 2 hljóđritađi.
    1 hr 49 min
  • Tom Jones og Van Leer á línunni
    Gestir Rokklands ađ ţessu sinni eru tveir og símvinir sem ég (Óli P.) rćddi viđ í vikunni sem leiđ.
    Ţetta eru tveir merkilegir tónlistarmenn sem báđir eru á leiđinni til Íslands til ađ spila. Annar kemur í fyrramáliđ (sunnudag) og er međ tónleika í Laugardalshöll á mánudaginn (8. júní) ? enginn annar en sir Tom Jones. Hann talar í ţćttinum um tónlistina og líf sitt, um Guđ, Janis Joplin og ýmislegt fleira. Tom Jones er stórskemmtilegur mađur og frábćr söngvari, risi í tónlistarsögunni, mađur sem sjálfur Elvis tók sér til fyrirmyndar.
    Í seinni hlutanum er ţađ Thijs Van Leer stofnandi, „söngvari“, orgelleikari og flautuleikari Hollensku progg-rokk-sveitarinnar Focus sem spilar á Grćna Hattinum á Akureyri nćsta laugardag og í Bćjarbíó í Hafnarfirđi á föstudaginn. Focus er merkilegt band sem hafđi mikil áhrif á ungt tónlistarfólk um allan heim um og uppúr 1970, t.d. strákana sem stofnuđu Stuđmenn og Ţursaflokkinn.
    1 hr 48 min
  • Mjólkurlítri fylgir hverjum hátíđarmiđa
    Tónlistarhátíđir eru mál málanna í Rokklandi vikunnar.
    Ég ćtla ađ tala ađeins um nokkrar af ţessum frábćru sumar-hátíđum sem hafa sprottiđ upp um alla Evrópu á undanförnum árum og áratugum í kjölfar Woodstock. Woodstock er upphafspunktur alls og ekkert verđur til úr engu.
    Sagt verđur frá Primavera Sound Festival sem fór fram núna um helgina í Barcelona. Haldern Pop í ţýskaland er lítil skemmtileg hátíđ sem Mammút, Low Roar og Kiasmos spila á núna í ágúst. Paleo Festival er svo risa hátíđ í Sviss ţar sem ađalnúmerin í sumar eru Sting, Robbie Williams, Robert Plant, David Guetta, Patti Smith og Kings of Leon. Roskilde Festival kemur viđ sögu og líka Glastonbury Festival sem var fyrst haldin áriđ 1970 á bújörđ Eavis fjölskyldunnar í Somerset á Englandi og ţá fylgdi líter af mjólk međ hverjum seldum miđa. VIđ kynnumst ađeins ţessum hátíđum gegnum talsmenn ţeirra, heyrum af hugmyndafrćđinni á bakviđ hátíđirnar.
    Einnig verur bođiđ upp á nýja íslenska tóna međ Júníusi Meyvant, Mammút og Of Monsters And Men.
    Heyrum í Future Islands á Primavera, The Replacements, Robert Plant, Patti Smith á Hróarskeldu, Fabian Tharin frá Sviss, Public Service Broadcasting frá Englandi, Metallica og Radiohead á Glastonbury, Joan baez og Led Zeppelin á tónleikum áriđ 1969 svo eitthađ sé nefnt..
    Heyrum líka upptöku međ Ásgeiri Trausta af Esjunni frá síđast6a föstudegi, en hann hélt tónleika á Esjunni fyrir nokkur hundruđ manns.
    1 hr 50 min
  • Vandamál Cohens og frelsi Gulla Briem...
    Ađalgestur Rokklands ađ ţessu sinni er Gulli Briem trommuleikari Mezzzoforte en hann var ađ senda frá sér plötu undir nafninu Earth Affair.
    Platan sem heitir Liberté er tekin upp víđsvegar um heiminn og ţar á međal í Húsafelli hjá slagverkssmiđnum Páli. Gulli segir frá gerđ plötunnar og ýmsu öđru í ţćttinum.
    Leonard Cohen sendi frá sér plötuna Popular Problems fyrir skemmstu og Óli Palli skođar hana ađeins og svo koma viđ sögu fjöldi hljómsveita og listamanna sem gerđu sín bestu verk fyrir mörgum árum og jafnvel áratugum, en eru enn ađ og enn ađ gefa út.
    Rokkland býđur upp á nýja músík međ Pink Floyd, Bryan Ferry, Bryan Adams, Ryan Adams, AC/DC, Todmobile + Steve Hackett (Genesis) ofl.
    Todmobile er um ţađ bil ađ senda frá sér átundu plötu sína og ţar á međal er nýtt lag sem heitir Midnight sin og sveiin samdi međ Steve Hackett gítarleikara Genesis, en hann ćtlar ađ spila međ Todmobile, sín lög og ţeirra í Eldborg í janúar.
    1 hr 54 min
  • Hjálmar í 10 ár
    Hljómsveitin Hjálmar fagnar um ţessar mundir 10 ára afmćli sínu og af ţví tilefni efndi hljómsveitin til tónleika í Eldborg í Hörpu sem seldist upp á án allra auglýsinga, sem gerist ekki á hverjum degi.
    Í tilefni af 10 ára afmćlinu hefur Sena gefiđ út veglega tvöfalda safnplötu međ mörgum af bestu lögum Hjálmanna. Platan heitir Skýjaborgin inniheldur samtals 30 lög og ţar af ţrjú ný.
    Ţađ var fyrir áratug ađ fyrsta breiđskífa Hjálma, Hljóđlega af stađ, kom út. Platan vakti talsverđa athygli, náđi gullsölu og var valin Rokk-plata ársins á Íslensku tónlistarverđlaununum auk ţess sem Hjálmar voru „Bjartasta vonin“.
    Hljóđversplötur Hjálmanna eru orđnar fimm talsins en auk ţess hafa ţeir sent frá sér safn áđur-óútgefinna laga og eina plötu međ finnska tónlistarmanninum Jimi Tenor, Dub of doom.
    Fjórđa breiđskífa Hjálma „IV“ var tekin upp áriđ 2009 á Jamaíka međ ţarlendum listamönnum. Hún sló í gegn, náđi platínusölu auk ţess ađ vera tilnefnd til fjölmargra verđlauna á Íslensku tónlistarverđlaununum. Nýjasta plata Hjálma, Órar, kom svo út haustiđ 2011 og sem oft áđur voru Hjálmar tilnefndir til Íslensku tónlistarverđlaunanna, m.a. fyrir „plötu ársins“.
    Hjálmar hafa haft hćgt um sig undanfariđ. Tveir af međlimum sveitarinnar, ţeir Sigurđur Guđmundsson og Valdimar Kolbeinn (bassi), hafa veriđ búsettir erlendis, auk ţess sem ađrir međlimir hafa veriđ uppteknir viđ tónleikaferđalög međ litla bróđur Steina söngvara, Ásgeiri Trausta.
    Hjálmarnir hafa ţó endrum og eins sent frá sér lög ţegar tími hefur gefist til ađ fara í hljóđver og má ţar nefna lagiđ Skýjaborgin sem og lögin Lof og Tilvonandi vor sem ţeir sendu frá sér nýlega.
    Ţeir Siggi og Kiddi sem lögđu grunninn ađ Hjálmum í Keflavík á sínum tíma eru gestir Rokklands ađ ţessu sinni og segja okkur frá samstarfinu, vináttunni, hliđarverkefnunum sem Ásgeiri Trausta, Uniimog, JImi Tenor, Erlend Oye ofl.
    1 hr 57 min
  • Plant & Arnalds
    Gestir Rokklands ađ ţessu sinni eru Robert Plant (Led Zeppelin) og Ólöf Arnalds.
    Ólöf var ađ senda frá sér sína fjórđu plötu. Hún heitir Palme og er hennar mesta samstarfsverkefni til ţessa segir í fréttatilkynningu. Ţar segir líka ađ tónlistarlega bjóđi platan upp á óvćnta uppsprettu nýrra hugmynda og leikrćnar tilraunir sem knúa hljóđheiminn áfram frá órafrćnum frágangspunkti sem er ráđandi á fyrstu ţremur plötunum, „Viđ og viđ“ (2007), „Innundir Skinni“ (2009) og „Sudden Elevation“ (2013).
    Ólöf segir sjálf frá plötunni í ţćttinum.
    Robert Plant var ađ senda frá sér 10undu sólóplötu. Hún heitir Lullaby.... And the Ceaceless Roar og hefur fengiđ góđa dóma um allan heim. H'un hefur líka selst vel og náđi t.d. 2. sćti vinsćldalistanna bćđi í Bretlandi og Bandaríkjunum.
    Međ Robert á plötunni eru menn úr ýmsum áttum. Sumir voru međ honum fyrir rúmum áratug í hljómsveitinni Strange Sensation sem kom međ honum hingađ til Íslands 2005 á neđan ađrir eru nýjir. Ţetta eru allt reyndir menn sem hafa spilađ međ Sinéad O´Connor. Cast, Jaw Woooble, Massive Attack, Portishead, Brian Eno ofl. Og svo er einn frá Gambíu.
    1 hr 52 min
  • Ţetta er ekkert nýtt, bara rokk og ról...
    Hljómsveitin Sólstafir sendi í vikunni sem leiđ frá sér sína metnađarfyllstu og hugsanlega bestu plötu, Óttu.
    Ótta er fimmta plata Sólstafa sem hafa veriđ starfandi í nćstum 20 ár. Sólstafir er ţungarokk-hljómsveit í grunninn en tónlistin hefur breyst í gegnum árin og Sólstafir minna í dag ekki minna á Sigur Rós en Metallica, er kannski ţarna mitt á milli einhverstađar. Tónlistin er ţrungin tilfinningu og dramatík. Lögin eru löng og umfjöllunarefniđ er gamla góđa; Sex, drugs & Rock´n roll segja ţeir Addi (Ađalbjörn) söngvari og gítarleikari og trommarinn Gummi (Guđmundur Óli). Ţeir tala opinskátt um hljómsveitina, listina, lífiđ, brennivín, Bakkus og áhrifavaldana í Rokklandi vikunnar.
    Ţađ er nóg framundan hjá Sólstöfum, sex vikna tónleikaferđ um Evrópu og svo eflaust eitthvađ meira í framhaldi af ţví.
    Sólstafir spila á Rokkjötnum 2014 nćsta föstudagskvöld sem Rás 2 ćtlar ađ senda beint út frá, ţungarokk-veisla í Vodafone höllinni, og svo taka Sólstafir ţátt í RIFF međ ţví ađ spila sína eigin tónlist undir sýningu á víkingamynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur í Salnum í Kópavogi miđvikudaginn 1. október.
    Lögin á Óttu eru átta, eins og eyktirnar sem voru helstu tímaviđmiđanir í daglegu tali áđur fyrr:
    lágnćtti - miđnćtti
    ótta
    rismál
    dagmál
    miđdegi - hádegi
    nón
    miđur aftann - miđaftann
    náttmál
    Sólstafir eru:
    Ađalbjörn Tryggvason - Söngur og gítar
    Guđmundur Óli Pálmason - Trommur
    Svavar Austmann - Bassi
    Sćţór Maríus Sćţórsson- Gítar
    1 hr 49 min
  • Söngvar sakleysis
    Nýja U2 platan er til umfjöllunar og spilunar í Rokklandi vikunnar. Sitt sýnist hverjum og skođanir eru sterkar á Bono og félögum sem fyrr.
    U2 sendi í vikunni sér plötu - öllum ađ óvörum og ţađ ókeypis fyrir alla sem vilja, alla sem erum međ I-tunes.
    Ţađ eru nćstum 6 ár liđin frá ţví síđasta plata U2, No Line On The Horizon, kom út og ţađ hafđi frést ađ ný plata međ U2 kćmi hugsanlega út á ţessu ári en ţađ vćri alls ekki víst. Ţađ kom ţess vegna mörgum á óvart ţegar framkvćmdastjóri Apple fyrirtćkisins, Tim Cook tilkynnti í vikunni sem leiđ ţegar iPhone 6 var kynntur til sögunnar á blađamannafundi í Cupertino í Kaliforníu, ađ ný plata liti dagsins ljós nokkrum sekúndum siđar.
    Cook kynnti hljómsveitina á sviđ á ráđstefnunni og ţar spilađi hún nýtt lag sem heitir The Miracle (of Joey Ramone) og er tileinkađ Joey Ramone, söngvara The Ramones sem hafđi mikil áhrif á Bono og félaga ţegar ţeir voru ungir strákar í Dublin.
    Ţegar hljómsveitin var búin ađ spila lagiđ sagđi Tim Cook; "Er ţetta er frábćrt lag! Vćri ekki geggjađ ađ fá heila plötu af svona?! En núna er spurningin; Hvernig komum viđ ţessu svo til mikils fjölda fólks á sama tíma?" Bono svarađi; "Er ekki Apple međ hálfan milljarđ manna í I-tunes áskrift ? er ekki máliđ ađ koma ţessu á ţađ fólk". "Jú viđ skulum gera ţađ og gefa fólki ţessa músík - frítt!" 5 sekúndum síđar var platan komin um allan heim og ţetta verđur ađ teljast ein stćrsta og viđamesta plötu-útgáfa sögunnar.
    Hljómsveitin var 2 ár ađ smíđa ţessa plötu sem Apple gaf svo heiminum í vikunni. U2 var ekki ađ gefa plötuna heldur fékk hljómsveitin 100 milljónir dollara fyrir hana segir sagan. Apple ákvađ ađ nýta plötuna og gefa hana öllum sem nota I-tunes. ţetta er auglýsinga“brella“ ef fólk vill nota ţađ orđ, en ţađ er soldiđ ljótt orđ og gefur til kynna ađ ţađ sé veriđ ađ plata fólk. Hér er engan veriđ ađ plata og ţetta er enn ein leiđin fyrir tónlistarmenn ađ koma tónlistinni sinni á framfćri á tímum ţegar allir vilja fá allt fyrir ekki neitt og tónlistarmennirnir tapa, fá lítiđ fyrir sinn snúđ á međan internet og síma-fyrirtćki grćđa á tá og fingri, t.d. á tónlist tónlistarmannanna.
    Upptökustjórinn Danger Mouse (Brian Burton) var helsti samstarfsmađur U2 veriđ gerđ plötunna en Flood, sem hefur unniđ međ U2 allar götur frá The Joshua Tree var gerđ 1987, kom ađ vinnunni líka. Ţar ađ auki lögđu ţeir Paul Epworth og Ryan Tedder sín lóđ á vogarskálarnar, en ţeir eru helst ţekktir fyrir ađ vera mennirnir á bakviđ Adele. Bono segir ađ ţeir hafi heldur betur gert gagn á plötunni og hjálpađ ţeim mikiđ. Og leiđarljósiđ sem vísađi ţeim Bono og félögum veginn á plötunni eru eldri piltar og ídol á borđ viđ Bítla og Stóns. Ţeir vildu á ţessari plötu gera góđ lög sem gćtu stađiđ fyrir sínu hvar og hvenćr sem er. Skýr hugsun og skýrar einfaldar melódíur.
    Ţegar sveitin lagđi upp í ţetta ferđalag, ţessa plötu, fóru ţeir í rćturnar og hlustuđu mikiđ á músíkina sem ţeir voru ađ hlusta á ţegar ţeir stofnuđu hljómsveitina, táningar i Dublin á áttunda áratugnum; pönk og glamrokk, Ramones, Joy Divison og David Bowie.
    Í Rokklandi dagsins verđa öll lög plötunnar spilum og Óli Palli leiđir hlustendur í gegnum hana. Auk ţess tjá ýmsir sig um U2 og plötuna. T.d Sigtryggur Baldursson sem túrađi međ U2 ţegar hann var í Sykurmolunum áriđ 1992, Friđrik Ómar, Heiđa Eiríks, Kiddi rokk og Jón Jónsson.
    1 hr 53 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners