Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Tónaflóđ 2013
    Í Rokklandi dagsins verđur bođiđ upp á brot af ţví besta frá Tónaflóđi Rásar 2 2013 sem fór fram á Arnarhóli í gćrkvöldi og var sent út beint bćđi á Rás 2 og RÚV.
    Fram komu:
    Kaleo
    Ásgeir Trausti
    Hjaltalín
    Sálin Hans Jóns Míns
    Fjölmenni var á tónleikunum ţrátt fyrir rigningu og ţađ sem viđ köllum yfirleitt; leiđinlegt veđur. En íslendingar eiga nóg af regnhlífum ýmiskonar og góđum og hlýjum fötum. Ţađ kom berlega í ljós í gćr og fólk skemmti sér vel í rigningunni.
    1 hr 52 min
  • Tíminn var Zebrahestur
    Högni Egilsson forsprakki hljómsveitarinnar Hjaltalín segir ađ tíminn hafi veriđ Zebrahestur um tíma í fyrra, en Högni greindist međ geđhvörf í fyrra.
    Platan frábćra, Enter 4 sem Hjaltalín sendi frá sér rétt fyrir síđustu jól er talsvert lituđ af ţessu tímabili í lífi og Högna og vina hans í hljómsveitinni og hann og Sigríđur Thorlacius söngkona Hjaltalín eru gestir Rokklands í dag. Ţau tala um gerđ plötunnar, geđhvörf og músík, Zebrahesta, Beyoncé og allt hitt.
    Eftir tćpa viku spilar Hjaltalín á Tónaflóđi 2013, stórtónleikum Rásar 2 á Menningarnótt viđ Arnarhól ásamt Ágeiri Trausta, Kaleo og Sálinni hans Jóns míns.
    1 hr 50 min
  • David Byrne á hjóli í Reykjavík
    Bandaríski tónlistarmađurinn David Byrne, fyrrum forsprakki hljómsveitarinnar Talking Heads hjólađi um Reykjavík ţegar hann hélt tónleika í Háskólabíói áriđ 1994.
    Hann hafđi međ sér lítiđ samanbrjótanlegt hjól ađ heiman og hjólađi um borgina. Nú er hann vćntanlegur til Reykjavíkur aftur og heldur tónleika aftur í Háskólabíói eftir rétta viku (sunnudaginn 18. ágúst) og ćtlar ađ nota tćkifćriđ og ferđast dálítiđ um vesturland og Snćfellsnes fyrir tónleikana.
    Óli Palli sló á ţráđinn til hans í vikunni sem leiđ og ţeir rćddu um samstarfiđ viđ tónlistarkonuna St. Vincent sem kemur međ Byrne til Íslands. Plötuna Love This Giant sem ţau gerđu saman og kom út í fyrra, um lífiđ og listina, bókaskrif, músíkbransann, hjólreiđar og allt mögulegt. Í ţćttinum kynnumst viđ David Byrne og tónlist hans, en gamla hljómsveitin hans; Talking Heads er ein áhrifamesta hljómsveit rokksögunnar. Talking Heads var samtíđa öđrum New York sveitum eins og Blondie, Ramones, Patti Smith og Television t.d. Ein af merkustu hljómsveitum punk/New Wave senunnar í New York árin í kringum 1980.
    Hinsegin dagar hafa sett svip sinn á mannlífiđ á Íslandi undanfarna daga. Líkast til er gott ađ vera hommi eđa lesbía á íslandi, hugsanlega er ţađ hvergi betra! En ţađ hefur ekki alltaf veriđ auđvelt ađ vera samkynhneigđur á Íslandi og í seinni hluti ţáttarins skođumm viđ ţađ örlítiđ og lítum líka ađeins til útlanda í ţví samhengi.
    1 hr 48 min
  • Beint úr Húna
    Rokkland var sent út beint úr Húna síđasta sunnudag.
    Í ţćttium eru endurteknir lokatónleikar Húna sem fóru fram á Akureyri laugardagskvöldiđ 20. júlí í bland viđ viđtöl viđ áhafnir Húna. Tónlistarfólkiđ Láru, Mugison, Jónas Sig, Ómar Guđjóns, Adda og Guđna og svo skipstjórann, stýrimanninn, kokkinn ofl.
    1 hr 47 min
  • Springsteen og ég og Black Sabbath og 13
    lack Sabbath er hljómsveitin sem öđrum fremur skapađi ţungarokkiđ eins og viđ ţekkjum ţađ í dag, Heavy Metal. Hljómsveitin hefur veriđ starfandi međ hléum í meira en 40 ár og í ýmsum útgáfum.
    Sveitin sendi á dögunum frá sér fyrstu plötuna međ upphaflega söngvarann, Ozzy Osbourne innanborđs síđan 1978. Platan heitir 13 og smellti sér í toppsćti vinsćldalistanna bćđi í Ameríku og Bretlandi ţegar hún kom út. Ţađ sem er kannski merkilegast viđ ţetta alltsaman er ađ 13 er fyrsta plata Black Sabbath sem nćr toppsćti vinsćldalistanna. Er ţetta svona frábćr plata eđa er máliđ ađ köllunum til ađstođar á plötunni var stjörnu-upptökustjórinn Rick Rubin? Allt um ţađ í Rokklandi.
    Bruce Springsteen er einn merkasti, elskađasti og dáđasti tónlistarmađur samtímans. Núna mánudaginn eftir viku, 22. Júlí verđur frumsýnd ný kvikmynd sem heitir Springsteen and I og fjallar alveg jafn mikiđ um ađdáendur hans og hann sjálfan. Ţađ er fyrirtćki í eigu Ridley Scott sem framleiđir ţessa mynd en ađal framleiđandinn er ung kona frá Akranesi sem heitir Svana og er Gísladóttir. Viđ heyrum í henni í ţćttinum og líka lítillega í Springsteen sjálfum.
    Svo verđur bođiđ upp á nýja músík međ listamönnum og hljómsveitum eins og Travis, Franz Ferdinand, Emmelie De Forest, Eliza Doolitle, The Handsome Family, Denis Whitmore, The Proclmaimers og Aluna George t.d.
    1 hr 53 min
  • Roskilde upprifjun
    Í Rokklandi dagsins eru liđnar Hróarskelduhátíđir rifjađar upp.
    Wayne Coyne söngvari bandarísku hljómsveitarinnar The Flaming Lips kemur viđ sögu, brot úr viđtali sem Óli Palli átti viđ hann daginn eftir slysiđ hrćđilega á Hróarskeldu áriđ 2000 ţegar ungu mennirnir 9 tróđust undir á tónleikum Pearl Jam á Orange sviđinu. Í ţćttinum er líka brot úr viđtali viđ Sigur Rós frá sömu hátíđ sem og brot úr öđru viđtali viđ Sigur Rós frá hátíđinni 2003. Tómas Young sem árum saman var opinber talsmađur og tengiliđur Roskilde Festival á íslandi segir frá sjálbođaliđastarfinu Roskilde festival, en Tómas er sá sem stóđ fyrir ATP í Kaflavík um síđustu helgi.
    Óli Palli fer líka á rúntinn um Hróarskeldu međ Jónasi Sigurđssyni sem bjó um árabil í bćnum. Rikke sem er ađal hljómsveita-bókari hátíđarinnar er á línunni og ýmislegt fleira. Svo er bođiđ upp á tónleikaupptökur frá hátíđinni međ hljómsveitum eins og D.A.D. Oasis, Sigur Rós, Iron Maiden, Coldplay, Patti Smith, Nick Cave og Bad Seeds, Jack Johnson, Blondie, Travis, Strokes, Brian Wilson, Madness ofl.
    1 hr 50 min
  • Nick Cave elskar Laxness
    ick Cave las Sjálfstćtt fólk eftir Laxness og finnst hún frábćr. Hann var á línunni í Rokklandi sunnudaginn 30. júní.
    Óli Palli rćđir viđ Cave, sem kom fram á ATP hátíđinni í Kaflavík í gćrkvöld ásamt hljómsveitinni sinni The Bad Seeds, um trúmál, Johnny Cash, Ísland og ýmislegt fleira.
    ATP hátíđin verđur líka í brennidepli í Rokklandi og ýmislegt annađ.
    Annars er ţađ helst ađ frétta af Nick Cave og tónleikum hans í gćr á ATP ađ ţeir voru magnađir, sveitin spilađi í hátt í 2 tíma og mörg sínum ţekkstustu lögum í bland viđ lög af nýjustu plötunni, Push The Sky Away.
    Cave féll niđur af sviđinu í öđru lagi tónleikanna. Hann stóđ ţá á mjóum rampi sem stóđ útfrá sviđinu og ţegar hann steig til baka og ćtlađi til félaga sinna á sviđinu hitti hann ekki á rampinn og féll framfyrir sig. Hvarf sjónum tónleikagesta.
    Hljómsveitin hélt áfram ađ spila lagiđ Jubilee street sem var einn af hápunktum tónleiianna en í tćpa mínútu voru tónleikagestir á milli vonar og ótta um hvort hann myndi halda áfram međ tónleikana eđa ekki. En svo birtist hann aftur og lét eins og ekkert hefđi í skorist. Ţegar lagiđ var svo búiđ sagđi hann ađ rampurinn vćri „helvíti slćm hugmynd“ og ađ ţar vantađi handriđ.
    Ţessi lagalisti er skrifađur eftir minni og ekki víst ađ hann sé alveg réttur:
    We No Who U R
    Jubilee Street
    From Her to Eternity
    The Weeping Song
    Deanna
    Mermaids
    Jack the Ripper
    Tupelo
    God Is in the House
    We Real Cool
    Papa Won't Leave You, Henry
    The Mercy Seat
    Stagger Lee
    Push the Sky Away
    UPPKLAPP
    Red Right Hand
    2 hr 33 min
  • Jeff Beck ruddi brautina fyrir Zeppelin
    Breski gítarleikarinn og tónlistarmađurinn Jeff Beck er á leiđinni til landsins í vikunni og spilar á tónleikum í Vodafone höllinni nćsta fimmtudag og verđur á línunni í Rokklandi í dag (23.06.2013).
    Jeff Beck er séní og einn fremsti gítarleikari sögunnar. Hann var t.d. í 5. Sćti á lista sem tónlistarblađiđ Rolling Stone setti saman fyrir nokkrum árum og ţar var jafnframt talađ um hann sem einn áhrifamesta gítarleikara rokksögunnar.
    Hann hefur sjö sinnum unniđ til Grammy verđlauna. Hann er tvöfaldur međlimur í Frćgđarhöll rokksins. Annarsvegar sem hluti af hljómsveitinni Yardbirds síđan 1992, og svo sóló síđan 2009.
    Auk ţess ađ gefa út fjöldan allan af sólóplötum í gegnum tíđina hefur hann spilađ inn á plötur međ listamönnum eins og Mick Jagger, Tinu Turner, Morrissey, Jon Bon Jovi, Malcom McLaren, Kate Bush, Roger Waters, Donovan, Stevie Wonder, Les Paul, Zucchero, Cyndi Lauper, Brian May og ZZ Top svo eitthvađ sé nefnt.
    Og hann kemur hingađ til ađ spila fyrir tilstuđlan góđgerđasamtakanna Endgame, en Endgame berst gegn útbreiđslu AIDS, Malaríu og Berkla í heiminum og markmiđiđ er ađ útrýma ţessum vágestum!
    Jeff Beck verđur á línunni í Rokklandi og talar m.a. um Yardbirds, Led Zepplin, um gildi ţess ađ ćfa sig og hvers vegna hann notar ekki gítarneglur.
    Tónlistarhátíđin All Tomorrow?s Parties (ATP) dregur nafn sitt frá samnefndu lagi međ hljómsveitinni The Velvet Underground. ATP og viđburđir á hennar vegum hafa veriđ haldnir um allan heim í nćstum fjórtán ár. ATP varđ til í kjölfariđ á tónlistarhátíđinni Bowlie Weekender sem hljómsveitin Belle and Sebestian stóđ fyrir áriđ 1999 á sumarleyfisstađnum Pontins í bćnum Camber Sands á suđurströnd Englands. Á fyrstu All Tomorrow?s Parties hátíđinni áriđ 2000 í Camber Sands var hljómsveitin Mogwai fengin til ađ vera listrćnn stjórnandi og valdi allar ţćr hljómsveitir sem komu fram á á hátíđinni, eins og Belle and Sebastian höfđu gert á Bowlie Weekender áriđ áđur. Allar götur síđar hefur hátíđin veriđ haldin árlega.
    Umfang ATP fer sífellt stćkkandi en stjórnendur hátíđarinnar hafa ávallt haft ţađ ađ leiđarljósi ađ ađgreina sig frá öđrum hátíđum sem fjármagnađar eru af stórum styrktarađilum og stórfyrirtćkjum. Ţađ gera ţau međ ţví ađ halda hátíđum sínum smáum í sniđum ţannig ađ nándin sé mikil og „fan-friendly? eins og lýst er á heimasíđu ATP
    Ţau voru stödd á landinu í síđustu viku ţau Barry Hogan og Deborah Kee Higgins, stjórnendur ATP og Óli Palli rćddi viđ ţau um ţessa skemmtilegu hátíđ og hvers vegna hún sé núna komin til íslands.
    1 hr 55 min
  • Homer fílar Sigur Rós
    Hljómsveitin Sigur Rós sendir frá sér sjöundu plötu sína í dag. Hún heitir Kveikur og er mál málanna í Rokklandi vikunnar.
    Í ţćttinum kemur hljómsveitin Band Of Horses sem spilađi í Eldborg í Hörpu sl. ţriđjudagskvöld ađeins viđ sögu. Tónleikarnir voru frábćrir og voru teknir upp fyrir Rás 2. Á tónleikadag komu ţeir í viđtal til Óla Palla ţeir Bill bassaleikari og söngvarinn og gítarleikarinn Ben Bridwell. Ben segir í ţćttinum t.d. frá laginu No one´s gonna love you.
    Tónlistin í kvikmyndinni The Great Gatsby sem veriđ er ađ sýna í bíóhúsum núna kemur líka viđ sögu, en ţar eru nýjar, en gamaldags útgáfur laga Beyoncé og Roxy Music.
    En hljómsveitin Sigur Rós sló í gegn á Íslandi sumariđ 1999 ţegar platan Ágćtis Byrjun kom út. Međ hverju árinu sem hefur liđiđ síđan ţá hefur vegur Sigur Rósar vaxiđ og í dag er Sigur Rós eitt magnađasta tónleikaband heimsins. Heimsţekkt hljómsveit sem er meira ađ segja búiđ ađ gera ódauđlega í Simpsons ţćtti.
    Núna í dag (17. Júní) kemur út ný plata međ Sigur Rós, sjöunda stóra platan, og ţar kveđur viđ nýjan tón. Á burt er strengja-dramatíkin sem hefur hálfpartinn einkennt tónlist Sigur Rósar frá Ágćtis Byrjun, og nú stígur Sigur Rós (sem er tríó síđan í fyrra eftir ađ Kjartan Sveinsson hljómborđs og gítarleikari hćtti) fram međ talsvert ţyngri músík og öđruvísi en mađur hefur átt ađ venjast frá hljómsveitinni.
    Ţeir Goggi bassaleikari og Orri trommari eru gestir Rokklands ađ ţessu sinni og fara yfir plötuna lag fyrir lag.
    1 hr 51 min
  • Rokk og Folk frá Reykjavík og London...
    Savages, Laura Marling og Snorri Helgason eru í ađalhlutverki í Rokklandi í dag (09.06.2013)
    Laura Marling er 23 ára gömul stelpa frá Englandi sem líkt hefur veriđ viđ meistara söngvaskáldanna, Joni Mitchell og Bob Dylan. Hún yfirgaf England í fyrra og býr núna í Kalifoníu. Hún sendi nýlega frá sér fjórđu plötuna sína sem gagnrýnendur hafa hrósađ endalaust. Laura kemur viđ sögu í Rokklandi og auđvitađ lög af nýju plötunni hennar sem heitir When I Was An Eagle.
    Stelpnabandiđ Savages frá London er sjóđheitt. Savages ţykir minna á Patti Smith, Joy Division og fleiri hetjur post-pönksins. Savages er um ţessar mundir ađ leggja heiminn ađ fótum sér og liđur í ţví er umfjöllum í Rokklandi vikunnar.
    Snorri Helgason er staddur í Nashville um ţessar mundir viđ upptökur nýrrar plötu. Í mars var hann staddur í Reykjavík og spilađi ţá á Reykjavík Folk Festival ásamt hljómsveit sinni. RÚV hljóđritađi og viđ heyrum hvernig ţađ var í ţćttinum.
    Einnig koma viđ sögu listamenn og hljómsveitir eins og Airbourne, Volbeat, Jeff Tweedy og Mavis Staples, Lambchop, British Sea Power og Bj. Thomas, Lonnie Donegan og Howlin Wolf.
    1 hr 52 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners