Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Tónaflóđ 2012 í Rokklandi
    Tónleikar Rásar 2 á Menningarnótt, sem voru sendir út beint laugardagskvöldiđ 18. ágúst, bćđi á Rás 2 og RÚV voru vel heppnađir í alla stađi og ţúsundir manna mćttu á hólinn til ađ upplifa stemmninguna.
    Ţeir sem fram komu voru Eivör, Retro Stefsson, KK Band og Jónas Sig og Ritvélar framtíđarinnar.
    Í Rokklandi sunnudaginn 19. ágúst var bođiđ upp á örlítiđ stytta útgáfu af tónleikunum.
    2 hr 45 min
  • Brćđslubrotin bćta!
    Rokklandi á morgun (12.08.2012) ćtlar Óli Palli ađ bjóđa upp á endurupplifun á hamingjunni sem ríkti á Brćđslunni á Borgarfirđi Eystra laugardagskvöldiđ fyrir tveimur vikum.
    Á Brćđslunni sem haldin var í ár í 8. sinn komu fram The Lovely Lion, Contalgen Funeral, Jónas Sig og Magni, Valgeir Guđjónsson, Mugison og Fjallabrćđur. Allir ţessir listamenn koma viđ sögu í ţćttinum og meira ađ segja Einar Bárđarson!
    1 hr 54 min
  • Óskabörn ţjóđarinnar = OMAM
    Of Monsters And Men sem heldur áfram sigurför sinni um heiminn verđur í ađalhlutverki í Rokklandi á sunnudaginn.
    Ţegar sveitin sem er á tónleikaferđalagi um Bandaríkin ţessa dagana var í stuttu stoppi á Íslandi í byrjun júlí, komu ţau Nanna Bryndís söngkona og gítarleikarinn Brynjar í heimsókn í Efstaleitiđ og fóru yfir sögu sveitarinnar međ Óla Palla, allt frá ţví amma hennar Nönnu hvatti hana til ađ lćra á gítar frekar en píanó og til heimsóknarinnar í ţátt Jay Leno í júní sl. Á leiđinni er t.d. komiđ viđ í Skúrnum á Rás 2 ţar sem Nanna kom fyrst fram í útvarpi sem Songbird, og í músíktilraunum ţar sem sveitin hét fyrst Hatchiko en breytti nafninu í Of Monsters And Men fyrir úrslitakvöldiđ 2010 og vann!
    1 hr 52 min
  • Tom Jones, Florence + The Machine, Jon Lord R.I.P. David Bowie
    Í Rokklandi sunnudaginn 22.07.2012 kemur gullbarkinn Tom Jones (72 ára) ađeins viđ sögu, en hann er nýbúinn ađ senda frá sér plötu sem minnir um margt á ţađ sem Johnny Cash gerđi árin áđur en hann féll frá.
    ??Svo verđur rifjađ upp 5 ára gamalt viđtal viđ Ian Gillan söngvara Deep Purple, en orgelleikari Purple, Jon Lord sem var einn af stofnendunum og var í bandinu frá 1967 ? 2002, lést núna síđasta mánudag. Gillan talar t.d. um verkiđ mikla sem Lord samdi og var flutt áriđ 1969 af Deep Purple og Lundúnar-fílaharmoníunni í Royal Albert Hall, flestum sem ađ ţví komu til talsverđa leiđinda.
    Viđ heyrum svo ađeins í Alabama Shakes, Mumford & Sons, King Charles, Florence + The Machine, Adele, Noruh Jones og David Bowie. Frá síđustu Hróarskelduhátiđ heyrum viđ í The Shins á tónleikum og í sćnskum feđgum sem hafa gert ţađ ađ hefđ ađ koma á hátíđina og vinna sem sjálfbođaliđar. VIđ heyrum líka viđtal viđ kaffisölumanninn Jóhannes (frá Svíţjóđ) sem var í sveit í Austur Landeyjum fyrir 20 árum hjá honum Jóni bónda.??
    1 hr 52 min
  • Kóngurinn og Afró-Kúba!
    Rokkland er á sínum stađ eftir 4 fréttir í dag og ţćr ćtlar Óli Palli ađ bjóđa upp á magnađan kokteil.
    Viđ byrjum á ađ heyra nokkur lög eftir U2 í flutningi annara listamanna, eins og Jack White. Jack White sló í gegn á Roskilde Festival um síđustu helgi og Óli ćtlar ađeins ađ rćđa um ţađ og spila m.a. upptökur frá Hróarskelduhátíđinni međ The White Stripes.
    Kóngurinn sjálfur, Elvis Presley tengir svo saman nokkra listamenn sem koma viđ sögu, en ţeir eru Lisa Marie, dóttir hans sem var ađ senda frá sér sína fyrstu plötu í mörg ár, Richard Hawley, sem samdi nokkur lög á plötuna međ henni og svo Don Randi sem hefur spilađ međ Elvis, Richard Hawley og Geir Ólafs.
    Í seinni hluta ţáttarins er svo fariđ á tónleika međ Afrocubism á Hróarskelduhátíđinni í fyrra.
    2 hr 45 min
  • Međ allsberum á Roskilde!
    Rokkland dagsins var sent út beint frá Hróarskelduhátíđinni í Danmörku.
    Í ţćttinum bauđ Óli Palli upp á splunkunýjar tónleikaupptökur međ nokkrum af áhugaverđustu listamönnum hátíđarinnar, sagđi sögur af gestum og veđri, spjallađi viđ listamenn, gesti, sjálfbođaliđa og sigurvegara "allsbera-hlaupsins" sem fór fram á laugardeginum, en sigurvegarinn er Kópavogsbúi sem á ćttir ađ rekja til Selfoss.
    1 hr 56 min
  • Gítargođ frá Sheffield og stórstjörnur úr Garđinum í Rokklandi!
    Í Rokklandi sunnudaginn (01.07.2012) rćddi Óli Palli viđ lagasmiđinn, söngvarann og gítargođiđ Richard Hawley frá Sheffield um lífiđ og listina, en hann sendi stuttu fyrr frá sér magnađa plötu sem heitir Standing at the Sky´s egde og er hans sjöunda plata.
    Richard ţessi hefur spilađ međ Nancy Sinatra og Pulp og Hank Marvin og Duane Eddy og Arctic Monkeys og allskonar liđi. Í ţćttinum var líka bođiđ upp á síđustu tónleika Of Monsters And Men sem ţau spiluđu á, áđur en ţau héldu upp í ćvintýriđ mikla til Ameríku í mars. Tónleikarnir fóru fram í heimabć Nönnu Bryndísar söngkonu, Garđinum, á vita og vísnahátíđ sem fór fram í byggđasafni Garđskaga 3. mars sl.
    1 hr 52 min
  • John Mayer, Múgsefjun, Joni Mitchell
    Mayer, Múgsefjun og Mitchell!
    Fyrst birt: 24.06.2012 13:40, Síđast uppfćrt: 27.06.2012 10:03
    Bandaríski tónlistarmađurinn John Mayer var ađ senda frá sér sína plötu sem heitir Born And Raised.
    Ţađ verđur fjallađ um hana í Rokklandi í dag eftir 4 fréttir. Mayer hefur selt meira en 20 milljónir platna, unniđ til ótal verđlauna og svo framvegis. Ţetta allt á hljómsveitin Múgsefjun eftir, en hver veit hvađ á eftir ađ gerast. Nýja platan ţeirra er a.m.k. frábćr og ţeir segja sjálfir frá henni í ţćttinum í dag. Joni Mitchell segir ađ Bob Dylan sé plat og ţar á međal bćđi röddin og nafniđ! Allt um ţađ í ţćtti dagsins. Líka ný músík frá ZZ Top, The Shins, Tallest Man On Earth, The Head And The Heart, Richard Hawley ofl.
    1 hr 56 min
  • Jethro Tull og Thick as a brick 1 & 2
    Ian Anderson foringi Jethro Tull mun ásamt hljómsveit sinni flytja plötuna Thick as a brick frá 1972 í Eldborg í Hörpu nćsta fimmtudag og föstudag, og einnig framhaldiđ, Thick as a brick II sem kom út í apríl.
    Ólafur Páll Gunnarsson sló á ţráđinn til Ians í vikunni og leiddi hann hlustendur í gegnum plöturnar í Rokklandi á sunnudaginn var.
    Hann sagđi frá tilurđ platnanna og söguhetjunni, hinum 8 ára gamla Gerald Bostock sem skrifađi texta Thick as a brick á sínum tíma, - eđa gerđi hann ţađ kannski ekki?
    1 hr 49 min
  • Elvis Costello í Hafnarfirđi
    Elvis Costello ók í gegnum Hafnarfjörđ í gćrdag á leiđ sinni til Reykjavíkur, en hann syngur og spilar í Hörpu í kvöld (10.06.2012).
    Rokkland dagsins er helgađ Elvis, tónlist hans og ferli sem spannar orđiđ 35 ár.
    Hann á ađ baki ótrúlega magnađan feril, hefur spilađ međ flestum stćrstu stjörnum rokksögunnar og samiđ lög međ mönnum eins og Paul McCartney svo eithvađ sé nefnt. Hann byrjađi í pönk-New wave deildinni í Bretlandi á áttunda áratugunum en hefur síđan gert plötur međ Brodsky kvartettinum, međ Burt Bacharach og Anna Sofia Von Otter, en alltaf tekur hann reglulega upp Telecasterinn og rokkar međ hljómsveitinni sinni The Imposters. Hún er reyndar ekki međ honum í Hörpu í kvöld ţar sem hann verđur einn á sviđinu.
    1 hr 53 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners