Hlaðvarpið sem stundum sefur er mætt aftur hressara en nokkru sinni. Að þessu sinni skoðum við síðu 892, lesafbrigði-lesta. Væri það þáttur af Orðabúrinu ef ekki færi talsverður tími í fáránlega útreikninga á gömlum mælieiningum? Ég held ekki. Þáttarstjórnendur opinbera sig líka sem tvö ljón og neyð heiðingja kemur við sögu. Grafið er upp athyglisvert orðfæri um kynhneigð og rifjaðar upp deilur um að gefa hinsegin fólki pláss á eigin forsendum í útvarpi allra landsmanna.
Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.