Orðabúrið

Orðabúrið

By ordaburidSociety & Culture
Download on the App Store

Orðabúrið episodes

  • Forsetakosningar 2024

    Í þessum þætti bregðum við af vananum og fáum að heyra uppáhaldsorð níu frambjóðenda til embættis forseta Íslands. Frambjóðendur sem koma fram í þættinum eru:

    Halla Hrund Logadóttir 

    Eiríkur Ingi Jóhannson
    Halla Tómasdóttir
    Baldur Þórhallsson
    Helga Þórisdóttir
    Ásdís Rán Gunnarsdóttir
    Katrín Jakobsdóttir
    Jón Gnarr
    Viktor Traustason
    Arnar Þór Jónsson

    1 hr 1 min
  • S02E16 - 404 - tveir karakterar sem eru báðir ég
    Góðan daginn og gleðileg jól! Þessi þáttur, 404 - fundarhald-fúkki, er að vísu ekki jólaþáttur þar sem við erum orðnir uppskroppa með jólasíður í orðabókinni en er mjög skemmtilegur engu að síður með kakó og piparkökur og teppi og kertaljós. Fatasaga Íslendinga fær aldrei þessu vant örlítið að njóta sín og kynngimagnaðir galdratilburðir koma við sögu. Við finnum á síðunni eitt íslenskasta orð sem til er og komumst að því að sendiherrar dagsins í dag eru ekki að standa sig, a.m.k. ekki í greinaskrifum. Við heyrum einnig gamalt röfl þar sem karlmaður vill að konur hætti þessu hekl- og blúndupjatti. Kannski er sá náungi bara furtur með hampvindling, en hann er þó ekki fiskstelandi galdraprestur af Ströndum. Allt um það í þessum þætti Orðabúrsins!
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    1 hr 9 min
  • S02E15 - 854 - síðullaðir hippar
    Sælinú! Orðabúrið snýr loks aftur! Það er kominn tími til að ljúka 2. seríu. Að þessu sinni er það síða 854, laga-laggabragð. Stjórnendur gera sitt besta til að halda lagatækniflækjum í lágmarki þrátt fyrir efnivið síðunnar að þessu sinni. Við pælum örlítið í hári kólumbískra fótboltamanna, biðlum til íslensks stórfyrirtækis um að taka tillit til þess að fólk á skeiðar og ræðum um skreyttar kindur. Kók í tréflösku, sænsk börn á lager og höfrungaknapar koma einnig við sögu. Ætíð!
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    32 min
  • Jólaþáttur 2 - 736 - Pönnuskuggi, Steingrímur og Bjálfinn
    Hó hó hó! Önnur þáttaröð af Orðabúrinu er komin í jólafrí, en örvæntið ekki, hér er annar jólaþáttur Orðabúrsins! Við skoðum síðu 736, jólaskrá-Jónsmessa. Við komumst m.a. að því í gömlum jólaskrám að margir dagar á árinu eru varhugaverðir og að það er sama hvaða dag nýársdag ber upp á, einhver mun deyja en sumarið er alltaf þurrt. Þá eru rifjaðar upp lýsingar á jólum fyrri alda á Íslandi þar sem var t.d. stundað að fela hluti í grjónagraut og við komumst að því að hattbursti er klárlega jólagjöfin í ár. Aðrir óvæntari gestir á borð við norskt öfgarokk, lélega brandara og auðvelt sund skjóta einnig upp kollinum.
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    1 hr 15 min
  • S02E14 - 973 - smámennisfaðmkorn
    Hvað eiga mormónskir stjórnarskrárbrjótendur, dönskusogin setningaskipan og hlaupandi fjólublátt málfar sameiginlegt? Þetta kemur allt fyrir í þessum nýjasta þætti af Orðabúrinu þar sem þáttastjórnendur takast á við síðu 973, málalok-málfrelsi. Óhefðbundin blóm og óhefðbundnir fiskar koma nokkuð við sögu, sem og óhefðbundin ávörp á RÚV. Gamalt nöldur er fyrirferðarmikið, þá sérstaklega meðal málfarskverúlanta, og gamlar mælieiningar ná nýjum hæðum. Þá ákveðum við að halda flámælisdaginn hátíðlegan, hvaða dagur ársins er það? Komist að því í þættinum. 
    Tónlistin er eftir Kevin MacLeod.
    1 hr 10 min
  • S02E13 - 1114 - innspekilykillaus
    Það er óstætt í innsveitum að þessu sinni í Orðabúrinu þegar við lítum á síðu 1114, ósnokinn-ósær. Stjörnuspáin er í frekar miklu óstuði en þau eru alveg með þetta þarna á Eskifirði. Annars staðar á landinu er fólk duglegt að hleypa inn dönsku, eða það er a.m.k. kenning okkar. Þá lærum við um kvalir málfræðingsins og þáttarstjórnendur rekast á mögulega besta orð þáttanna hingað til. Hvaða orð er það? Komist að því í þessum þætti af Orðabúrinu.
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    58 min
  • S02E12 - 49 - Litli-Pabbi Þór
    Rithöfundur ráfar inn á ritstjórnarskrifstofu. Hvað eru mörg R í því? Það er komið að síðu 49, athugavandur-atómþungi. Hver er höfundurinn? Það er hann Hagalín sem heldur þrumuræðu um hættuna sem stafar af atómkveðskap. Orðabúrarnir ræða einnig um hárdúk í millifóður, blússuföt í skólann og ekki má gleyma Jacquard-vefnaðinum. Atlantíska bandalagið kemur einnig við sögu og fleiri þróaðir pabbabrandarar eru sagðir. 
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    56 min
  • S02E11 - 892 - slökktu kalkið
    Hlaðvarpið sem stundum sefur er mætt aftur hressara en nokkru sinni. Að þessu sinni skoðum við síðu 892, lesafbrigði-lesta. Væri það þáttur af Orðabúrinu ef ekki færi talsverður tími í fáránlega útreikninga á gömlum mælieiningum? Ég held ekki. Þáttarstjórnendur opinbera sig líka sem tvö ljón og neyð heiðingja kemur við sögu. Grafið er upp athyglisvert orðfæri um kynhneigð og rifjaðar upp deilur um að gefa hinsegin fólki pláss á eigin forsendum í útvarpi allra landsmanna.
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    54 min
  • S02E10 - 143 - Joðbrandur
    Orðabúrið snýr aftur, þó ekki 7 árum á eftir áætlun, með síðu 143, blótfórn-blýþungur! Í þessum þætti veltum við fyrir okkur hversu langt forfeður okkar gengu til að heiðra guðina. Þá segjum við nokkra lélega brandara og komumst að því hverjir heimsóttu land og þjóð árið 1860. Gamalt nöldur og undarlegar mælieiningar eru sem fyrr á sínum stað og gagnsemi blývatns kemur við sögu. Athugið að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af blýeitrun!
    ATH efnisviðvörun fyrir 10:04-15:20, rætt um blygðunarbrot.
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    1 hr
  • Viðaukaþáttur - Kosningar
    Í þessum sérstaka viðaukaþætti í tilefni kosninga báðum við framboðin um að senda okkur upptöku afeinum frambjóðanda í einhverju kjördæmi að segja frá sínu uppáhaldsorði. Við settum þetta síðansaman í stafrófsröð eftir listabókstaf. Þáttakendur voru:
    XB: Ágúst Bjarni GarðarssonXC: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir XF: Jakob Frímann MagnússonXJ: Rúnar Freyr JúlíussonXM: Erna BjarnadóttirXP: Einar BrynjólfssonXS: Guðmundur Andri ThorssonXV: Orri Páll Jóhannsson
    Kunnum við þeim bestu þakkir.
    Því miður bárust hvorki svör frá Sjálfstæðisflokknum né Frjálslynda Lýðræðisflokknum fyrir útgáfu.Tónlistin er eftir Kevin MacLeod
    9 min

About Orðabúrið

From the publisher's feed

Orðabúrið er hlaðvarp þar sem Kristján Sigurðarson og Pétur Már Sigurjónsson leas orðabókina eina handahófskennda blaðsíðu í einu og reyna að draga fram það skemmtilega, skrítna, og skelfilega á…