Orðabúrið

Orðabúrið

By ordaburidSociety & Culture
Download on the App Store

Orðabúrið episodes

  • S02E09 - 158 - 12 kvint af mulinni krít
    Í síðasta þætti var Orðabúrið með 50% meiri krossferðum en er nú með u.þ.b. 125% meiri lúðu. Þáttastjórnendur skoða að þessu sinni síðu 158, bónvax-bragð, misskilja nokkra hluti en gerast líka skáldlegir í meira lagi. Bakkusarþjónkun, hugvekjur um bórax og toiletsápa koma við sögu og svo er aldrei að vita nema frú Brabra láti sjá sig!
    Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    56 min
  • S02E08 - 964 - Nú með 50% meiri krossferðum
    Kæru hlustendur, það er margt að varast í þætti vikunnar, sem fjallar um síðu 964, margurinn-maríulifur. Til dæmis er ekki gott að borða náttlampa eða skilja geitur eftir hvar sem er. Margýgur er líka hættuleg enda ein af ókindum hafsins. En það eru líka góðar fréttir, við fáum góð ráð um hvernig megi bræða af sér fitu meðan maður sinnir heimilisstörfum og gamlir góðir vinir á borð við óskiljanlegar mælieiningar og sækýr koma að sjálfsögðu einnig við sögu. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    1 hr 18 min
  • S02E07 - 1088 - notaðu tetra, bensín og terpentínu
    Það er komið að síðu 1088, okþóa-onað. Í þættinum lærum við meðal annars að lægja öldur með olíupokum og höfum ólíkar skoðanir á ágæti orðsins olíusósa. Við heyrum bréf frá Íslendingi á Skotlandi og höfum áhyggjur af sviknum hörkökum en það er alltaf mikilvægt að hafa mikið af holdgjafaefnum. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    55 min
  • S02E06 - 1356 - vort djúpasta respekt
    Efni þáttarins að þessu sinni er síða 1356, skrofhærður-skrunka. Við heyrum af skrollandi skrokkskjóðum og megnum skruggueldi og lesum um pólitísk-póetísk ærsl og skrípalæti. Þá er einnig bullað um metafýsík og sjálfsprottin ker. Lesendur fá nokkur góð, ensk ráð til að pirra manninn sinn og ráð um hvernig sé best að haga drykkju. Þá er aldrei að vita nema Ferris Bueller, Ungaraland og lygapokar skjóti upp kollinum. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    1 hr
  • S02E05 - 1490 - Buzzfeed millistríðsáranna
    Það er komið að síðu 1490, stórræði-stóuspeki. Það má með sanni segja að þetta sé stór þáttur, þar sem við stundum stórsvig milli sjómennsku og styrjalda. Við fjöllum um hvað tölvur (computers) hafa tekið miklum framförum og hættum okkur inn í Evrópu á millistríðsárunum. Siðleysi áfengissölumanna fær á baukinn, og við komumst að því að það er til svo miklu, miklu betra orð fyrir óperu. Tónlistin er eftir Kevin McLeod.
    Þessi þáttur markar eins árs afmæli Orðabúrsins! Ef þú hefur gaman af máttu endilega deila þættinum með fleirum. Svo erum við með Facebook-síðu ef þú vilt fylgjast með. Takk fyrir að hlusta.
    1 hr 19 min
  • S02E04 - 246 - Í frændsemi við náhvali, hýenur og marglyttur!
    Við færum okkur í blaðsíðu 246, dýpka-dýrmenni. Það er nóg um dýrðir að þessu sinni (bókstaflega), en einnig talsvert af dýrum. Enn og aftur lærum við um ýmsa kirkjudaga, tölum fyrir dýravernd og gegn ljótum dýragildrum. Við fáum að heyra óáreiðanlega en nákvæma stjörnuspá og deilum um muninn á ólíkum kórónum. Mundu svo að það er í Hollywood sem þú sérð stjörnurnar! Rétt er að hafa eina leiðréttingu, en dýridagur var 2. júní í ár, ekki 30. maí eins og ranglega er haldið fram í þættinum. Tónlistin er eftir Kevin McLeod.
    54 min
  • S02E03 - 462 - er krydd skósverta?
    Það er komið að síðu 462, glerfínn-gleypinn. Er rímum farið að vaxa skegg? Hvernig tengist suðuramerísk höfuðborg þýskum Amazon-pökkum á Íslandi? Svör við því fást í Orðabúrinu. Mánaskin, mágasólskin og ungur maður með glerkuntu koma einnig við sögu, og við veltum fyrir okkur hvort fólk hafi framið dýraníð af tómum leiðindum í gamla daga. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    1 hr 3 min
  • S02Ee02 - 686 - hyljunarmaður góður
    Í þættinum ræðum við síðu 486, hygli-hysja. Við dýfum hylkjunum í hylinn og öndum að okkur hyldi. Við rekumst á nokkra hyrninga og klæðum okkur í hypilinn. Þá koma gígantískir kálfar við sögu og hver veit nema sýslað verði með hrossgarnir. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.
    53 min
  • S02E01 - 591 - námskeið í hrífugerð
    Í þessum fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar tæklum við síðu 591, hjartatindur-hjálmabönd. Við afneitum allri hjáfræði og komumst að því hvað við vitum lítið um hrífugerð. Einnig ræðum við hvað matargerð fyrr á öldum var ólystug. Við erum óvissir um hvað flokkast sem rekkjunautur, og föttum að við erum ekki nógu ósammála. Hjassar koma líka við sögu.
    49 min
  • Hó hó hó! 735 - jólaþáttur
    Það jólar! Í þessum sérstaka jólaþætti af Orðabúrinu jólum við okkur hressilega í gang og ræðum hin ýmsu jólaorð sem koma fyrir í orðabókinni. Við lærum áhugaverða uppskrift að meðlæti, ræðum líkindi með stofnunum og jólasveinum, og förum ef til vill í jólaköttinn. Engin jólalög eða jólabjór samt en ef til vill örlítil óvænt uppákoma. Gleðileg jól!
    1 hr 18 min

About Orðabúrið

From the publisher's feed

Orðabúrið er hlaðvarp þar sem Kristján Sigurðarson og Pétur Már Sigurjónsson leas orðabókina eina handahófskennda blaðsíðu í einu og reyna að draga fram það skemmtilega, skrítna, og skelfilega á…