Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Orðabúrið er hlaðvarp þar sem Kristján Sigurðarson og Pétur Már Sigurjónsson leas orðabókina eina handahófskennda blaðsíðu í einu og reyna að draga fram það skemmtilega, skrítna, og skelfilega á hverr... more
FAQs about Orðabúrið:How many episodes does Orðabúrið have?The podcast currently has 40 episodes available.
November 19, 202020. þáttur - uppgjör!Þá er komið að lokum fyrstu þáttaraðar! Í þessum þætti rifjum við upp gullmola, gersemar og groddaskap, og allt þar á milli. Orðabúrið snýr svo aftur fljótlega í sérstökum jólaþætti. Ekki missa af því!...more25minPlay
November 13, 202019. þáttur - 1627 - tylling-týja - Parruk með typpi upp úrÁ síðu vikunnar, 1627, römbum við sumpart á svipaðar slóðir og í fyrsta þætti seríunnar, 1588. Eldri merking og notkun orðsins typpi veldur því að ýmsar auglýsingar og sögur frá fyrri hluta 20. aldar eru hreinlega hlægilegar í dag. Við ræðum líka tyllisætt stórveldanna fyrir stríð og óþarfa blammeringar í garð Tyrkja og einn einmana tyngling á himnum uppi. Þá heyrum við meðal annars um harða skítaköggla, synda syndaseli og aumingja í upphituðum húsum. Tónlistin er eftir Kevin MacLeod....more1h 16minPlay
November 05, 202018. þáttur - 1823 - þorratungl-þorskur - Pabbi þarf að kaupa dagaspjöldÍ þætti vikunnar fá páska- og tímatalsreikningar aftur töluvert pláss, enda mikið áhugamál þáttarstjórnenda. Að öðru leyti er mikið rætt um þorsk, þorskígildi og þorskastríðið og gamlar mælieiningar skjóta enn eina ferðina upp kollinum ásamt undarlegri beitu. Ekki gleyma að hafa þurr nærföt til skiptanna þegar þið farið á hákarlaveiðar!...more46minPlay
October 29, 202017. þáttur - 1130 - péturskóngur-pinnaður - Stopp! Þetta er löðreglanÍ þætti vikunnar kíkjum við á síðu 1130, péturskóngur-pinnaður. Við fræðumst um pétursær og -kýr og heyrum af löngum málaferlum og deilum á þingi vegna péturslamba. Illa er farið með föt íslensks málaliða og frönsk kurteisi veldur vandræðum. Ýmis misfalleg orð eru notuð um kvennabaráttu 20. aldar en tekið er til varna fyrir erlend orð í sjómannamáli, meðal annars af öryggisástæðum. Skíðaiðkun Seyðfirðinga kemur við sögu og keikó fær orðið í smástund....more1h 5minPlay
October 15, 202016. þáttur - Prinsippíelt á móti WagnerHafiði heyrt um prestinn sem átti prest, át prest, týndist því hann fann engan prest og dó þegar presturinn fór í sundur? Við kynnumst honum í þætti vikunnar og ræðum m.a. óskiljanlegar aðferðir við að reikna út páska og veltum fyrir okkur hvort klámhundar hafi komið að því að semja íslenskan líffræðiorðaforða. Síða vikunnar er 1143, prestssetur-prísund. Tónlistin er sem fyrr eftir Kevin MacLeod. Munið að taka börn ekki upp á höfðinu!...more51minPlay
October 08, 202015. þáttur - Næturfólk og morgunpersónurÍ þætti vikunnar skilum við skömminni um fáfræði okkar um gamlar fötur og komumst að því að það hefur verið leiðinlegt að vera fjósamaður í riðtíðarmánuði árið 1873 og almennt ekkert sérstakt að vera á landinu, enda löngum verið fátækrahatandi skítahola. Frjálshuga æskufólk stígur dansspor við ágætt dæmi um fönk og við fáum að heyra ýmislegt um Sínverja. Munið að þvo slorkútana upp úr pusunni! Síða vikunnar er 416, fönix-g. Tónlistin er eftir Kevin MacLeod....more59minPlay
October 01, 202014. þáttur - Mér er alveg sama hvað íslenskukennarinn þinn hétVissirðu að Darwin var ekki markaðsmaður? Ekki við heldur. Útvalning hans á orðum kemur m.a. fyrir í þætti vikunnar en ræstiduft var ekki eitt þeirra sem hann kaus að nota. Við komumst að skemmtilegu norsku heiti fyrir útvarpsfólk en svör þáttarstjórnenda við hrikalegum smásmugulegum tittlingaskít frá pennafretandi pólitíkus taka töluvert pláss. Síða vikunnar er 1679, úttala-útvindur....more1h 1minPlay
September 24, 202013. þáttur - Ég á heima á KúrlandiÍ þessum afar stutta þætti skoðum við síðu 523, halda-halda, og vitum í raun ekki hvað við eigum að halda. Við ræðum framhjáhöld og sjóndeildarhringinn, og leggjum til viðbót við sígilt jólalag....more11minPlay
September 18, 202012. þáttur - Í yfirfrakka frá Stefáni í SteinholtiÍ þætti vikunnar skoðum við orðin æskualdur-ætla sem prýða síðu 1860. Æskan er allsráðandi og aðdáendur Here comes Honey Boo Boo og Follow that food geta tekið gleði sína. Við deilum um hvort gott sé að vera æskuheitur eða ekki og konur gleymast í æskulýðsstarfi. Við lærum að greina hvort fiskar séu ætir og komumst að því að Englendingar eldast mun betur en Frakkar....more52minPlay
September 10, 202011. þáttur - Velkomin í sæluranninnÍ þætti vikunnar sængum við í sæluhúsi þegar við kynnumst ýmsum orðum sem byrja á sæ-. Við fáum okkur sængurkaffi og ræðum m.a. gamla íslenska brúðkaupssiði og ólíka gauka. Pétursskip og önnur skip koma við sögu, sem og gömul aðferð sjómanna við veðurspár. Við heyrum frásögn af gífurlöngum sænaðri og Víkverji er ósáttur við þungaskattinn. Varist sænautin!...more1hPlay
FAQs about Orðabúrið:How many episodes does Orðabúrið have?The podcast currently has 40 episodes available.