Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Orðabúrið er hlaðvarp þar sem Kristján Sigurðarson og Pétur Már Sigurjónsson leas orðabókina eina handahófskennda blaðsíðu í einu og reyna að draga fram það skemmtilega, skrítna, og skelfilega á hverr... more
FAQs about Orðabúrið:How many episodes does Orðabúrið have?The podcast currently has 40 episodes available.
September 03, 202010. þáttur - 504 - gulllax-gulmaðraÍ gullþungum þætti vikunnar göngum við inn um Gullvörtu, komumst að því að 5000 er miklu minna en milljón og að síld getur verið lax (eða að lax getur verið síld). Við lærum líka um óþarfa samheiti fyrir gyllinæð og að gullplötur eru flóknar. Japansk-frönsk hjón sem ræktuðu maðka á 9. áratugnum og skítþvottur þeirra koma við sögu og hin sívinsælu sælindýr láta aftur á sér kræla eftir verðskuldað frí, þó ekki á Gullströndinni....more1h 4minPlay
August 27, 20209. þáttur - 229 - dreifbeð-drekkjaÍ þætti vikunnar er rætt um miðaldaerjur þar sem meðal annars er beitt þeirri þjóðlegu aðferð að koma í veg fyrir að fólk komist á salernið. Hýperlýsingagleði ákveðins fréttaritara í Madríd kemur við sögu og við bregðum okkur í alsælualdamótapartí eftir viðkomu í Rússlandi. Einnig er skorað á orðanefndir fagfélaga að hætta þýða allt með orðinu dreifing. Þá ræðum við forn-grískt drekasæði og óbeit eldklerks á kommúnistum. Drekar eru fyrirferðarmiklir, hvort sem þeir eru skip, lömb eða menn, sem og drekkur, drekkur og drekkur. Tónlistin er eftir Kevin MacLeod....more1h 6minPlay
August 13, 20208. þáttur - 911 - lífstíð-líkamsmenningÍ þætti vikunnar koma samheiti fyrir niðurgang enn og aftur fyrir eyru hlustenda því ásakanir um bullandi nillara á fyrri hluta 20. aldar fá að fljúga. Þá er eldræða séra Frasiers um lífstykki í Ottawa saga sem enginn má missa af og ætti í rauninni skilið að hljóta umfjöllun Veru Illugadóttur í Í ljósi sögunnar. Þáttastjórnendur taka upp líkakrákinn og grafa upp ýmis kostuleg orð og enn betri dæmi um notkun þeirra. Passið að kaupa kína-lífs-elexírinn og ekki drekka kóleru!...more1h 4minPlay
August 07, 20207. þáttur - 1128 - perlukvistur-persónuleikiAð þessu sinni ræðum við orðin perlukvistur til persónuleiki. Nett skilgreining á orðinu permanent vekur kátínu og perlusmokkur þýðir ekki það sem þú heldur. Við veltum fyrir okkur aðferðum við að breyta ákveðnum steinum í froðu og komum við í Úsbekistan en komumst ekki til Persíu. Við finnum hins vegar fjársjóð á Vestfjörðum þegar við uppgötvum staðbundinn íslenskan orðasjóð sem kemur að góðum notum, eða eitthvað....more50minPlay
July 31, 20206. þáttur - 315 - fellafífill-felustaðurÍ þætti vikunnar eru tekin fyrir orðin fellafífill til felustaður. Rætt er um kosti og galla þess að mála herstöðvar í felulitum og þáttastjórnendur uppgötva undarlegt veigrunarorð um kjöt sem neytt var á föstunni fyrir páska. Þeir ramba einnig á líklega eitt af fáum orðum í íslenskum orðaforða af pólýnesískum uppruna. Morðvopn vikunnar og getraunin eru sem fyrr á sínum stað. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin MacLeod....more1h 1minPlay
July 24, 20205. þáttur - 1780 - vægur-vængjatakÍ fimmta þætti færum við okkur á hina vængjuðu síðu 1780: vægur - vængjatak. Við ræðum vændishöfðingja og vænghúfur, hversu óþarflega mörg samheiti eru til í íslensku yfir niðurgang og komumst einnig í smá vængbobba. Spurningar vakna um hvort hægt er að hafa ofnæmi fyrir vængaldini og hvort vængjahestur er sér- eða samnafn. Sumarsmellurinn um vængdílafluguna fær einnig að hljóma. Tónlistin í þættinum er sem fyrr eftir Kevin MacLeod....more43minPlay
July 16, 20204. þáttur - 832 - kústi-kvalnautnamaðurÍ þætti vikunnar ræðum við orðin kústi til kvalnautnamaður. Vesturþýskt símaklám, japlandi endur og háværir froskar koma við sögu, þó ekki sömu sögu. Menn fengu sér rækilega á kútinn en kvökluðu ekki og óþægileg tvíræðni orðsins kvalapula veldur hugsanlega vandræðum. Við heyrum færeyska frásögn af manni sem lenti í 127 hours aðstæðum og vonum að þið fyrirgefið smá mjálm í frekum ketti....more56minPlay
July 09, 20203. þáttur - 241 - dúnfjöður-dvalarstaðurÍ þriðja þætti Orðabúrsins skoðum við orðin dúnfjöður til dvalarstaður. Fyrrverandi, núverandi og verðandi MR-ingar, ekki hlusta á fyrstu fjórar mínúturnar, bara út af einni ástæðu. Við ræðum um morðvopn í fyrsta sinn og orðið dinglstöng verður til. Við dústrum niður köku og förum í nokkra jólaleiki, meðal annars að þekkja fólk með sleifum. Varist dúnflóna og hafið auga á dúsanum á titjunni....more50minPlay
July 02, 20202. þáttur - 793 - knapaknattleikur-knérunnurÍ þættinum skoðum við orð á síðu 793 í Íslenskri orðabók, knapaknattleikur til knérunnur. Við komumst að því að ensk stafsetning hefði getað verið auðveldari og ræðum hvort hægt sé að veiða túnfisk á öngul. Við förum yfir það hvers vegna Svíar eru ólíklegir til að finna hvítlauk í íslenskum búðum og komumst að því að við vitum ekkert um knastása en aðeins meira um vinsældir jólasveinanna. Getraun vikunnar hefur göngu sína og orðið kappmella þýðir ekki það sem þú heldur að það þýði....more1h 7minPlay
June 23, 20201. þáttur - 1588 - tirjóttur-tíðareglurÍ þessum fyrsta þætti Orðabúrsins skoðum við orð á síðu 1588 í Íslenskri orðabók. Við kynnumst Orðfáki og komumst að því hvað “réttu mér hvíttið” þýðir. Orðið besefi og epísk færsla þess í Íslenskri samheitaorðabók kemur við sögu í þættinum, sem var ekki tekinn upp á Tíbúrtíusmessu en er samt skemmtilegur. Skúrkur þáttarins er orðið titja. Læknir þáttarins er Hildur Margrét Ægisdóttir. Tónlistin í þættinum er eftir Kevin MacLeod....more46minPlay
FAQs about Orðabúrið:How many episodes does Orðabúrið have?The podcast currently has 40 episodes available.