Rithöfundur ráfar inn á ritstjórnarskrifstofu. Hvað eru mörg R í því? Það er komið að síðu 49, athugavandur-atómþungi. Hver er höfundurinn? Það er hann Hagalín sem heldur þrumuræðu um hættuna sem stafar af atómkveðskap. Orðabúrarnir ræða einnig um hárdúk í millifóður, blússuföt í skólann og ekki má gleyma Jacquard-vefnaðinum. Atlantíska bandalagið kemur einnig við sögu og fleiri þróaðir pabbabrandarar eru sagðir.
Tónlistin í þættinum er eftir Kevin McLeod.