Orðabúrið

S02E14 - 973 - smámennisfaðmkorn


Listen Later

Hvað eiga mormónskir stjórnarskrárbrjótendur, dönskusogin setningaskipan og hlaupandi fjólublátt málfar sameiginlegt? Þetta kemur allt fyrir í þessum nýjasta þætti af Orðabúrinu þar sem þáttastjórnendur takast á við síðu 973, málalok-málfrelsi. Óhefðbundin blóm og óhefðbundnir fiskar koma nokkuð við sögu, sem og óhefðbundin ávörp á RÚV. Gamalt nöldur er fyrirferðarmikið, þá sérstaklega meðal málfarskverúlanta, og gamlar mælieiningar ná nýjum hæðum. Þá ákveðum við að halda flámælisdaginn hátíðlegan, hvaða dagur ársins er það? Komist að því í þættinum. 
Tónlistin er eftir Kevin MacLeod.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

OrðabúriðBy ordaburid