Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá fólki, fyrirbærum og hugmyndum á upplýsandi hátt.... more
FAQs about Saga hugmyndanna:How many episodes does Saga hugmyndanna have?The podcast currently has 15 episodes available.
May 01, 2016SkrímsliÍ þættinum í dag ætlum við að fá að vita allt um íslensk skrímsli. Við heyrum ótrúlegar sögur frá Þorvaldi Friðrikssyni fréttamanni og skrímslafræðingi. Hvað er skrímsli? Hvar búa þau? Hvernig líta þau út? Hvernig vitum við það? Af hverju vitum við svona lítið um þau samt sem áður? Hvað er hafmaður? En fjörulalli? Eru þau vond? Öllum þessum spurningum og fleiri til verður svarað í þætti dagsins....more21minPlay
April 17, 2016LýðræðiStefanía Óskarsdóttir segir frá lýðræðinu og hver munurinn er á lýðræði og lýðveldi....more21minPlay
April 03, 2016ByltingHvað er bylting? Hvaðan kemur þetta orð og hvað þýðir það? Hverjar eru helstu byltingarnar? Hvað þýðir að byltingin éti börnin sín? Hvað er ógnarstjórn, valdarán og uppþot? Í gamla daga dóu oft margir í byltingum hver er þá munurinn á byltingu og stríði? Hvað lærðum við af Frönsku byltingunni og hvaða áhrif hafði hún? Þetta og margt fleira spennandi í þættinum. Sérfræðingur þáttarins er: Njörður Sigurjónsson byltingarfræðingur...more19minPlay
March 20, 2016SturlungaöldÍ þættinum ætlum við að fá að vita heilan helling um þetta svakalega tímabil í Íslandssögunni sem kallað er Sturlungaöld. Hvaða tímabil er þetta og hvernig var að vera krakki á þessum tíma? Af hverju voru menn að berjast svona mikið og hvernig lauk þessu tímabili sem kallað er öld en var ekki öld (þ.e. ekki hundrað ár). Sturlungaöld, þessi ár sem einkennast af blóðugum bardögum og skapandi skrifum er gríðarlega merkilegt í Íslandssögunni og hugsið ykkur bara ef við ættum ekki Íslendingasögurnar okkar og Snorra Eddu til dæmis, í rauninni myndum við ekkert vita um þennan tíma ef það væri ekki fyrir þá sem settust niður að skrifa þetta allt saman niður. Sérfræðingur þáttarins er: Guðrún Nordal . Fræðandi, forvitnilegt og svakalegt....more0minPlay
February 14, 2016SkátarÞað verður ging gang gúllí gúllí í þætti dagsins þar sem við ætlum að fá að vita hvað það er að vera skáti og kynna okkur sögu skátanna. Það koma fjórir sérfræðingar til okkar og segja okkur skemmtilegar sögur úr starfinu. Þau eru: Heiður úr stjórn bandaslags íslenskra skáta Magnús Atli Dróttskáti Elísa Sirrí Rekkaskáti Halldór Drekaskátaforingi Fjörugur, fræðandi og skemmtilegur þáttur....more0minPlay
February 07, 2016DraumarÍ þættinum ætlum við að fjalla um drauma og hvaðan þeir koma, af hverju okkur dreymir og hvort draumar séu sérmannlegt fyrirbæri eða hvort önnur dýr dreymi líka. Við þurfum að fræðast um heilann og hvað gerist þegar við sofnum og þegar við erum sofandi til að komast í draumaheim. Hvernig virkar heilinn? Er hægt að sofa með opin augun? Sofa öll dýr? Dreymir þau? Hvað eru dagdraumar? Hvað er það að vera berdreyminn? Margar og skemmtilegar pælingar í þætti dagsins. Sérfræðingur þáttarins er: Karl Ægir Karlsson...more21minPlay
FAQs about Saga hugmyndanna:How many episodes does Saga hugmyndanna have?The podcast currently has 15 episodes available.