Eftir við tölin við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, settust Baldvin og Patrekur niður að venju og ræddu um viðtölin. Hvernig mun íslenskum sjávarútvegi farnast fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið? Segja má að sjávarútvegurinn sé eitt stærsta einstaka hagsmunamál Íslands fari svo að gengið verði til viðræðna við sambandið. Í þættinum er rætt um úthlutun veiðiheimilda við Ísland, flökkustofna sem eilíf deila stendur um, erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi og ýmislegt fleira.