Í þessum þáttum er ætlunin að ræða heilbrigðisþjónustu í sem víðustu samhengi. Hér er á ferðinni málefni sem að margir hafa skoðanir á en kannski ekki oft sem heilbrigðismál eru rædd opinberlega án þess að einstaka mál verði fyrirferðarmikil. Við höfum meiri áhuga á að ræða þessi mál almennt og þá helst án upphrópana. Til þess fáum við ýmsa aðila sem tengjast heilbrigðisþjónustu. Gert ráð fyrir að viðmælendur hafi haft tíma og ráðrúm til undirbúnings. Þannig geta þeir rökstutt svör sín og vonandi útskýrt fyrir hlustendum stefnur og strauma á sínu fræðasviði. Einnig verður áhugavert að heyra þeirra sýn á heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar.
Umsjón: Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon.