
Sign up to save your podcasts
Or


Íbúar Glerársanda sameinast í svartnættinu á meðan óbærilega tens leit nær hámarki. Áttundi/sextándi þáttur fer alla leið, eða allavega á átakanleg svæði sem þarft er að skoða.
Baldvin og Tómas ræða þennan hinsta kafla í stærri sögu Anítu, Fríðu og Gústa og félaga á söndunum. Svörin eru skýrð út og hnútarnir hnýttir að mestu. Baldvin segir hver hugsunin og kjarninn er á bak við þennan lokasprett. Fylgir þarna líka hressileg saga af viðbrögðum fólks við þættinum í rýnishópum.
00:00 - Úrslitastund og fyrsta klipp
04:12 - Lýsingar Elíasar
06:55 - Skrefin tekin
07:20 - Nýr hott-sjotti að sunnan
09:10 - Samstaða innan fylkingar
12:20 - Tilfinningarússíbanareið
16:00 - Krítískt ástand
20:14 - Vísindamaðurinn missir kúlið
24:27 - Stóri lykillinn að endinum
28:05 - Ólíklegasti bjargvætturinn
33:00 - Stóra, stóra, stóra málið
36:00 - Hinsta skotið, rýnishópur og Fjara
39:40 - Spákorn
40:39 - Erfiðar útitökur
42:52 - Captain Phillips mómentið
46:00 - Sería þrjú yrði hundleiðinleg…
Annar þáttur Lögguhornsins en hér halda Ragnar og Tómas áfram spjalli sínu um lífið, bíólifið, safnaradellu og skaðann við það að festast í gefnu formi.
Efnisyfirlit:
00:00 - ,,Sloppy” vinnubrögð
03:40 - Nærandi að vera í teyminu
08:50 - Að rýna öðruvísi í hlutina
13:40 - Ókindin og meistararnir
20:08 - Sumt á haldast í minningunni
25:20 - Að festast ekki í forminu
Allt er sett í hágír og löggufaktorinn er settur í forgang sem aldrei fyrr. Yfirheyrslur, svör og sársauki eru í brennidepli áður en líður að lokalendingunni. Gústi, Fríða og jafnvel Jonna díla við þungar tilfinningar og ljósara er orðið hvert hlutirnir stefna hjá Anítu og Erlu. Þarna er líka miklu ljósi varpað á hvernig þær Auður, Ragnheiður og Hildur raunverulega díla við hlutina.
Erlendur leikstjóri (en hann er vissulega íslenskur) leiðir okkur í gegnum umfang þáttarins og aðferðafræðina sem fylgir andrúmslofti Glerársanda, í senn hvernig hann fékk að leika sér með ýmis konar stílbrögð. Fáum við jafnframt dýpri innsýn í vegferð Erlends í kvikmyndagerð og innbyggðu bíódelluna sem hann deilir með Tómasi.
Efnisyfirlit:
00:00 - Nauh, Snorri-cam!
02:50 - Hvernig líður Anítu?
04:40 - Megaspírallinn
07:17 - Fram af brúninni
09:00 - Ryþminn á hasarnum
12:30 - Þær þrjár og vilt túlkun
13:50 - Infó-dömp og snapp
16:20 - Subbuleg vinnubrögð
17:25 - Hvernig líður flestum?
18:23 - Hlutlaus vs. hlutdræg kvikmyndagerð
21:52 - Hemlur uppstillinganna
25:10 - Stílíseringar í senum
27:18 - Hvað með unglingana?
30:50 - Hið klíníska eða hið mannlega
37:06 - Vegferðin að bíógerð Ella
41:20 - Múltítask er alltaf plús
43:03 - Hvað sögðu prufuhóparnir?
46:01 - Persónulegar tengingar við verkið
48:42 - Tabú birtingarmyndir
52:02 - Heilbrigð ögrun listarinnar
55:40 - Ó-shit, Erla!
58:10 - Hafið er svart
Kolbeinn Arnbjörnsson er engum líkur og óhætt er að segja að líf hans hafi gjörbreyst með tilkomu Svörtu sanda. Skuggar Salómons Höllusonar hafa mikið geisað yfir Glerársöndum í seríu tvö og fær Kolbeinn jafnvel að skjóta upp kollinum í nokkur skipti.
Þeir Kolbeinn og Tómas velta fyrir sér aðdráttarafl leiklistarinnar, söguform, úrvinnslu áfalla og mörgu lög Salómons.
Efnisyfirlit:
00:00 - Hver var aðdrátturinn?
04:13 - Áföll endurspeglast í öllu
06:01 - Metall leikhús
12:36 - Layerar í samvinnunni
17:16 - Með ferskum augum
21:30 - Hvaðan kom listaáhuginn?
27:03 - Ofurnæmni Salómons
34:30 - Tenging í þjáningunni
37:55 - Einna töku dansinn
45:01 - Verkefnin í pípunum
52:09 - Hvað skilur mest eftir sig?
Þá er komið að stóra ‘flashback-þættinum’ og við bökkum um 40 ár í okkar narratífu. Rætur Helgu ömmu, Davíðs og fóstursystranna eru skoðaðar í þaula með örlagaríkum degi í lífi þeirra allra.
Við skyggnumst á bak við tilurð ljósmyndarinnar frægu og Baldvin kafar út í tilurð þessa þáttar og hvernig hann er gerólíkur öðrum þáttum syrpanna beggja. Má heldur ekki gleyma því að kafli þessi varpar ljósi á mjög raunbundin vandamál sem áður voru tíð í íslensku samfélagi.
Búið ykkur undir algjöran grjónagraut af geggjun, því nú fara svörin öll að hrannast upp.
Efnisyfirlit:
00:00 - Nálgunin á stóra endurlitinu
06:13 - Tökurnar á ljósmyndinni
09:15 - Að endurskapa períódu
11:50 - Erfiðasti spírallinn
14:55 - Um Helenu, þöggun og meðvirkni
17:15 - Systemið á Gullsöndum
19:50 - Bersýnileg blinda og siðblinda
22:20 - Aldeilis frábærar fréttir
24:40 - Núansar og ‘Lion King senan’
26:00 - Systematísk misnotkun
29:00 - Fræin stráð
31:39 - Mistök í útitökunum
33:57 - Skúrinn er uppspretta alls ills
35:20 - Dansandi berfættar
36:24 - Baldvin fær hugmynd
38:08 - Davíð springur
40:08 - Beðið til Almættis…
41:40 - Ragnheiður gerir ekki neitt
43:43 - Þar sem frá var horfið
44:50 - “Bara erfitt barn”
47:25 - Glottið umdeilda
49:28 - Leikretturnar á setti
Lengi vel er hægt að spekúlera um hvað lætur persónu eins og Anítu Elínardóttur tikka, en þá er auðvitað best að leita beint til einstaklingsins sem stendur hvað næst þessari persónu og á óneitanlega allra mest í henni.
Aldís Amah Hamilton er múltítaskari mikill með skýr gildi í lífinu, mikla útgeislun, ómælanlega ást á dýrum og heilbrigða lyst fyrir alls konar list.
Í þætti þessum er kafað út í allt hið mögulega í sögu Svörtu sanda fram að og út fimmta þátt. Við skoðum mengi persónanna, sambönd, tengsl og margs konar tabú og eldfim málefni sem seríurnar hafa verið að fjalla um almennt.
Og já, hver er eiginlega Emil?
Efnisyfirlit:
00:00 - Lífsgildi í verkum
02:02 - Kjarnasetningar og upplýsingasprengjur
06:25 - Samband Fríðu og Anítu
11:50 - Gerólíkar seríur, ólíkt álag
18:38 - Mikilvæga senan í bílnum
24:23 - Ný hlið á Steffí
31:01 - Jonna og co.
37:37 - Hvaða Emil?!
39:55 - Boginn hennar Auðar
43:49 - Að eignast eða eignast ekki börn
48:50 - Harmur borinn í hljóði
54:15 - Steiktar staðreyndir
59:57 - Trú á Álfu
1:02:59 - Hlúað að Gabríel
1:06:40 - Hallmark-kveðja
Núansar og stórar ósagðar tilfinningar koma til tals á meðan sögur fara að spyrjast út af nýjum likfundi á abstrakt litla sveitabænum. Álfheiður og Tómas greina ástandið á Anítu að sinni, mýktina í loftinu og tensjónana hjá unglingunum og hvað það er við Steffí sem gerir hana að tærum senuþjófi þáttarins.
Fimmti/Þrettándi þáttur leyfir heildarsögunni að taka hlutina rólega eða leyfa hlutunum svolítið “að malla”, að sögn leikstjórans. Álfheiður ræðir allar þær lúmsku, léttu og þyngri mómentum þáttarins. Fáeinar senur voru allsvakalega stokkaðar í lokaklippi, meðhöndlun hinnar kornungu Kríu heldur einnig áfram að vera væn uppspretta af baksviðs- og reynslusögum þessa setts. Þá koma líka furðulegir Íslandssiðir til tals og hvernig ‘slys’ í tökum geta orðið óvænt að litlum gullmolum, eins og frá er sagt.
Efnisyfirlit:
00:00 - Augun í Kríu
03:11 - ‘Breather’ karakterþáttur
06:50 - Hjá Davíð, þá Davíð
09:01 - Er Aníta að breytast í móður sína?
12:19 - Jonna rödd skynseminnar
15:50 - Steffí stelur senunni
22:03 - ‘Systkinin’ Fríða og Gústi
25:30 - Hvar er Gabríel?
28:03 - Undarlegir siðir
32:45 - Hvað með Dísu?
37:10 - Að finna rétta nálgun
38:40 - Þær þrjár og stigmögnun
43:20 - Yngri leikararnir
48:10 - Pylsupöntun úr ‘Í takt við tímann’
Margt og mikið hefur breyst hjá íslensku lögreglunni um síðustu áratugina. Ragnar Jónsson, bíódellukarl með meiru, er fulltrúi tæknideildar lögreglunnar og hefur sinnt allmörgum hlutverkum frá því að störf hans hófust árið 1990.
Ragnar hefur lært að fresta aldrei hlutum því enginn veit hvað morgundagurinn beri í skauti sér. Hann er einn handritshöfunda Svörtu sanda sem eru nú að gera það gott úti í heimi. Ragnar er nýkominn heim frá viðburðarríkri ferð til Bandaríkjanna þegar samtal þeirra Tómasar er hljóðritað, sem er ekki í frásögur færandi nema heimsókn hans til höfuðstöðva FBI í Washington, DC, reyndist honum ógleymanleg.
Lífið, listir og listilegir safngripir af margs konar toga eru Ragnari afar kærir og í Lögguhorni þessu er yfir víðan völl farið varðandi mannlega þáttinn í lífi og starfi aðkomu hans að Svörtu söndum, samningaviðræður og hvernig hann stóðst þá áskorun að skrifa sína fyrstu ástarsenu.
Efnisyfirlit:
00:00 - Hugarútrás á vinnustað
06:50 - ,,Ragnar (persónan) er ég”
08:10 - Helgarvaktir í löggunni
09:03 - ,,Hvað vilja áhorfendur sjá?”
17:17 - Heimsókn til höfuðstöðva FBI
24:40 - Listin að skrifa ástarsenu…
27:40 - ,,Þú verður að þora meira”
Álfheiður Marta Kjartansdóttir, leikstjóri fjórða/tólfta þáttar, hefur aldeilis skemmtilega og persónulega tengingu við atburðarásina á Glerársöndum. Þegar Baldvin bauð henni tækifærið að gerast stærri þátttakandi í seríu tvö var Álfheiður ófrísk og orðin nýbökuð móðir þegar leið að tökunum.
Barnsburður kemur akkúrat sterkt til umræðu í þessum kafla ásamt fáeinum senum sem draga hjartað í gegnum alls konar ósköp.
Álfheiður og Tómas stúdera undirliggjandi kraumið hjá karakterum í þessari lotu og ekki síst óvænt gestahlutverk þar sem leikstjórinn varð ögn ‘starstruck’, en í senn er útskýrt kostina við það að vera með allt á hreinu í kvikmyndagerð.
Efnisyfirlit:
00:00 - Með allt á hreinu, Benjamín dúfa og pylsumyndir
03:13 - Að leikstýra goðsögninni
04:22 - Fortíðardraugar og erfidrykkja
07:37 - Móðurhlutverkið
09:55 - Viðtengjanleg ólétta
13:05 - Sameining í sorgarferlum
15:33 - Trúnó og tráma
18:30 - Bogi Gústa
21:20 - Pálmi Gests í nærmynd
25:12 - Æfingar vs. handrit
28:22 - Mikið lagt í rammana
30:10 - Annar í andaglasi
33:30 - Leikmynd fortíðaruppgjörs
36:04 - Hvernig líður öllum?
38:50 - Beint í klæmaxinn
41:21 - Falin klipp og langar tökur
43:20 - Sögur um unglinga
44:36 - Að taka við leikstjórakeflinu
48:10 - Kríurnar tvær
13. Páskaegg handa nördum
Óvænt áföll geta breytt tilverunni á örlagastundu og missirinn gagnvart nýlátnum einstaklingi er fljótur að taka sinn toll á nánustu aðstandendur. Mörk vinnulífs og fjölskyldulífs eru komin að frostmarki og er lítið annað en létt kaos í stöðunni þegar allir þekkjast í litlu bæjarsamfélagi og gegna nokkrum hlutverkum í einu. Má vissulega deila um hvort þetta sé besti tíminn fyrir Davíð til að varpa sannleikssprengju sem gæti haft grafalvarleg áhrif á útkomuna framundan.
Annars eru stöllurnar Ragnheiður (Sólveig Arnars), Auður (Halldóra Geirharðsdóttir) og Hildur (Erla Ruth Harðardóttir) eru formlega sameinaðar á ný til að minnast vinkonu sína heitnu og gamla tíma í senn. Það sem virkar þó í fyrstu sem athöfn til að kveðja gömlu sárin verður hratt og bítandi að nýju upphafi þar sem mögulega er eitthvað enn verra í uppsiglingu en nýliðið dauðsfall sem skekur Glerársanda.
Ekki láta einfaldleikann blekkja, því nóg er til að róta í þegar kemur að þessum þriðja/ellefta þætti. Ekki síst blekkingarleikirnir sem hér ríkja á milli vinafólks og fjölskyldu.
Baldvin og Tómas skoða þáttinn í þaula og hvort það sé raunverulega þarna viðeigandi að skála fyrir gömlum tímum.
00:00 - Fríða og þynnkudýrið
02:24 - Einkalíf og löggulíf
05:37 - Aníta útundan
07:29 - Gústi reynir
08:40 - Suðupottur og suðupunktur
10:30 - Hús Ragnheiðar
12:25 - Þær þrjár
16:00 - Stöllur með reynslu af sprelli
18:48 - Davíð og erfiða samtalið
24:40 - Tommi á erfiðum stað
27:39 - Verksummerki í raunheimum
29:09 - Hver er sannleikurinn?
33:01 - Förunautar í þjáningu
34:03 - Merkelegt um skjalaverði
37:06 - Siglir í annað andaglas
40:51 - Lygin í loftinu
41:46 - Fuglarnir og Heiða
43:10 - “Farðu bara varlega”
45:59 - Yfirgefin
From the publisher's feed