Share Saumaklúbburinn
Share to email
Share to Facebook
Share to X
Fanney og Karlotta ræða um daginn og veginn og staldra við í smá samtali um smáforrit sem geta nýst okkur til þess að tengjast betur tilfinningum okkar og hugleiða. En stóra spurning dagsins gæti mögulega verið, var Hugh Hefner úlfur í sauðargæru, eða var þetta allt saman fiðrildi og einhyrningar á mansjoninu….
Karlotta og Fanney fá til sín frábæran gest, hana Lukku Pálsdóttur, en hún er ein eiganda Greenfit sem er fyrirtæki sem sinnir mælingum og aðstoðar bæði almenning og íþróttafólk við að hámarka árangur sinn og vellíðan með réttri næringu. Karlotta og Fanney voru einmitt að klára áskorun sem er stýrt af Greenfit og því upplagt að fá Lukku til að segja okkur betur frá bæði fyrirtækinu og áskoruninni sem og eiga gott spjall um næringu almennt.
Fanney og Karlotta ræða um haustið framundan. Hversu gott verður að fá gömlu góðu rútínuna aftur? Gengur þeim ekki báðum rosa vel með Greenfit áskorunina? Eru þær ekki örugglega búnar að finna fjölina sína eða setti einhver tíkall í trúðinn?
Karlotta og Fanney eru loks mætta aftur eftir smá sumarfrí og ræða saman meðal annars um hvort þær syngi í sturtunni, hvað þær hafi bardúsað í fríinu og hvað þeim fannst um Love Island... eru ekki allir að fylgjast með Love Island??....
Fanney og Karlotta hella sér í rauðvínglas og gæða sèr á súkkulaði og ostum… því má gera ráð fyrir að innihald þáttarins sé í samræmi við það ;) Skál í boðinu!
Fanney og Karlotta fá til sín yndislegan gest, hana Katrínu Ósk Jóhannsdóttur en hún er rithöfundur og frumkvöðull á sviði mannréttinda, geðræktar og sjálfshjálpar. Katrín hefur gefið út sjö bækur allar sem tengjast geðrækt og þá sérstaklega hvað varðar börn og unglinga. Katrín átti við okkur einlægt spjall um kulnun og hvernig hún hóf þessa vegferð út frá vanlíðan sonar síns.
Karlotta og Fanney fara um víðan völl og velta fyrir sér meðal annars hvort þær séu orðnar of gamlar til að fara á djammið…
Karlotta og Fanney hittast eftir allt of langt hlé og ræða saman um breytta tíma og Fanney segir frá lífsbreytandi ferðalagi sem hún fór í um helgina....
Karlotta og Fanney fengu til sín yndislegan gest, hana Fanneyju Sigurðardóttur. Fanney kemur fram undir nafninu Fanney_stjörnuspeki á Facebook og Instagram og grúskar þar í dulúðlegum fræðum stjörnumerkjanna og býður þar upp á að gera fyrir fólk stjörnukort og einkatíma með lestri og túlkun. Fanney kom til okkar og ræddi við okkur um næmnina og geðhvarfasýkina sem hún var greind með árið 2011. Skyldi hún lesa í stjörnurnar fyrir okkur?
Karlotta og Fanney eru mættar aftur á gamlar slóðir uppi í Keili og taka létt spjall um ferðalög, fávitaskap og eldamennsku og svo er nóg af allskonar öðru blaðri að sjálfsögðu, bla bla bla....
The podcast currently has 37 episodes available.