Kanadíska ljóðskáldið og fræðikonan Anne Carson heimsækir þáttinn ásamt eiginmanni sínum og samverkamanni Bob Currie.
Tónlistarmaðurinn Úlfur Hansson kemur og segir frá Segulhörpu, algjörlega nýrri tegund strengjahljóðfæris sem hann hefur unnið að undanfarin sex ár, og er nú loksins tilbúin til framleiðslu.
Rekaviður kemur við sögu í pistli sem Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir senda okkur frá Langanesi, en þar eru þau safnverðir í Sauðaneshúsi.
Í dag lentu á Keflavíkurflugvelli með flugvél Icelandair FI 2015 tvö af helstu miðaldahandritum Íslendinga sem varðveitt eru í Kaupmannahöfn. Ormsbók, eitt af höfuðhandritum Snorra Eddu, og Reykjabók Njálu, elsta nær heila handrit sögunnar og eina handrit hennar sem enn er varðveitt í Kaupmannahöfn. Þessi handrit koma í heimsókn til Íslands í tilefni af sýningunni Lífsblómið - Fullveldi í 100 ár sem opnuð verður í Listasafni Íslands þann 18. Júlí. Að því tilefni rifjum við upp beina útsendingu Ríkisútvarpsins frá árinu 1971 þegar mörg af verðmætustu fornhandritum Íslandssögunnar komu aftur til landsins, eftir að hafa varðveitt af dönum um aldaskeið.