Gestur Seiglunnar að þessu sinni er Orri Einars. Þar ræðir hann ferðalagið sitt að edrúmennsku. Fanney Dóra spyr hann spjörunum úr um lífið edrú og hvernig var að komast þangað.
Í níunda þætti fara Fanney og mamma hennar Þórdís Jóna inná mörg málefni. Til dæmis jákvæða líkamsímynd, samband mæðgna, heilbrigðan lífstíl og margt fleira. Mikilvæg umræðu efni fyrir foreldra og börn!
Anna Lára Orlowska er gestur vikunar í Seiglunni. Við fáum að heyra allt um að vera ung kona í viðskiptum. Ungfrú Ísland, fjölskylduna og að vera stolt af arfleið sinni. Þið viljið ekki missa af þessum þætti!
Tanja Ýr áhrifavaldur og fyrirtækja eigandi heimsækir Fanney Dóru í sjöunda þætti af Seiglunni. Þar ræða þær mátt samfélagsmiðla, fjölmiðla og komandi verkefni. Ef þú hefur áhuga á samfélagsmiðlum og vinnu áhrifavalda þá máttu ekki missa af þessum.
Í sjötta þætti fær Fanney til sín Helgu Lind Mar sem segir okkur frá druslugöngunni og öllu sem henni tengist. Þú vilt ekki missa af þessu mikilvæga spjalli fyrir gönguna!
Fanney Dóra fær til sín tónlistarkonuna Guðrúnu Eyfjörð betur þekkt sem GDRN. Þær ræða tónlistar senuna á Íslandi og hvernig er hægt að skara fram úr í tónlist.
Fanney Dóra fær til sín frábæran gest, hana Ernu Kristínu betur þekkt sem Ernuland. Þær ræða meðal annars um líkamsvirðingu og andlega heilsu. Fanney heldur svo áfram og segir okkur betur frá rútunni, þú vilt ekki missa af því.
51 min
About Seiglan
From the publisher's feed
Fanney Dóra fær til sín gesti alla sunnudaga á ÁttanFM og svo er þátturinn aðgengilegur á öllum helstu Podcast veitum.